Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 3/2013

29.10.2013

Álagningu tekjuskatts er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2012 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og http://www.skattur.is/.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 30. október til 13. nóvember 2013 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 2. desember 2013.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.       

30. október 2013

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum