Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 2/2010

28.7.2010

Um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2010

Álagningu opinberra gjalda, sem og ákvörðun vaxta- og barnabóta, á árinu 2010 lýkur þann 28. júlí 2010 á þá einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt 1. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningin er nú aðgengileg á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi liggja frammi á skattstofum eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 28. júlí til 11. ágúst 2010 að báðum dögum meðtöldum.

Framlagning álagningarskráa er samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. framangreindra laga.

Álagning gjalda á lögaðila fer fram síðar og verður auglýst sérstaklega.

Kærur vegna allra álagðra gjalda einstaklinga 2010 þurfa að hafa borist ríkisskattstjóra eigi síðar en miðvikudaginn 25. ágúst 2010.

Ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum