Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 1/2008

3.1.2008

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 1/2008
um skil á upplýsingum á árinu 2008, vegna framtalsgerðar o.fl., samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

3. janúar 2008 nr. 2008 - 1

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2007 skuli skilað eigi síðar en 8. febrúar 2008. Upplýsingum þessum skal, ef unnt er, skilað á tölvutæku formi, annað hvort í gagnaskilakerfi ríkisskattstjóra eða samkvæmt færslulýsingu, sem finna má á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hugbunadarhus/.

Sé upplýsingunum ekki skilað á tölvutæku formi skal þeim skilað til skattstjóra þess umdæmis, þar sem skilaskyldur aðili á lögheimili 31. desember 2007, eigi síðar en 28. janúar 2008 á tilgreindum eyðublöðum sem einnig má finna á vef ríkisskattstjóra, rsk.is, undir eyðublöð.

  1. Launamiðar og verktakamiðar (RSK 2.01)
    Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni eða vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr launakerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur textaskráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sending textaskráa á diskum til skattstjóra ásamt samtöluupplýsingum á pappír.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 28. janúar.
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035).
    Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar.
    Skilaform:
    • Sjá orðsendingu sem send verður skilaskyldum aðilum í janúar.

    Tengiliður RSK:

  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.04).
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Beinar skeytasendingar m.a. úr fjárhagskerfum með vefþjónustu.
      • Skráning upplýsinga í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Innlestur textaskráa, sem útbúnar eru m.a. með launakerfum, í Gagnaskilakerfi RSK.
      • Sending textaskráa á diskum til skattstjóra ásamt samtöluupplýsingum á pappír.
      • Sjá nánar um Gagnaskil.
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 28. janúar.
  4. Launaframtal (RSK 1.05).

    Allir sem greiða laun eiga kost á að skila sundurliðun á launagreiðslum (stofn til tryggingagjalds) rafrænt og þurfa því ekki að skila Launaframtali RSK 1.05.

    Hjá einstaklingum með rekstur er launaframtalið hluti af samræmingarblaði RSK 4.05, hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri er það hluti af skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 og hjá félögum sem undanþegin eru tekjuskatti er það hluti af skattframtali óskattskyldra lögaðila RSK 1.06 sem nú er hægt að skila á þjónustusíðu á skattur.is.

    Skilaform:
    • Rafrænt, á þjónustusíðu á skattur.is, sbr. ofanritað.
    • Hægt að skila á pappír, sjá eyðublað RSK 1.05 og orðsendingu til launagreiðanda nr.5/2007.

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 28. janúar ef framtalinu er skilað á pappír.
      Ef launaframtali er skilað rafrænt fylgir það skilafresti vegna framtala, þ.e. síðasti skiladagur er 26. mars hjá einstaklingum og 31. maí hjá öllum lögaðilum.
  5. Skýrsla um viðskipti með hlutabréf (RSK 2.08).
    Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 28. janúar.
  6. Lán til einstaklinga (fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán).
    Skilaskyldar eru fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar.
  7. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). 
    Skilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.06).
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar ef skilað er á rafrænu formi, annars 28. janúar.
  8. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 28. janúar.
  9. Greiðslumiðar – leiga eða afnot (RSK 2.02).
    Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
    Skilaform:
    • Rafrænt
      • Greiðslumiði fylgir skattframtali einstaklinga á vefnum og er skilað með því sé það notað.
      • Einnig má senda greiðslumiða sem launamiða (sjá hér að ofan). Þá er notaður reitur 65 á launamiða. Launamiðum er hægt að skila; beint úr launakerfum, með innlestri á textaskrá í Gagnaskilakerfinu (sjá Gagnaskil) eða með skráningu í sama kerfi.
    • Pappír

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 8. febrúar ef skilað er á rafrænu formi sem launamiði.
      Sami skiladagur og skattframtal einstaklinga ef skilað er með því, annars 28. janúar ef skilað er á pappír.
  10. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi (RSK 2.085).
    Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003.
    Skilaform:

    Tengiliður RSK:

    Skiladagur:

    • 28. janúar.

Auglýsing þessi, sem sett er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 3. janúar 2008
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum