Skil atvinnumanna á skattframtölum viðskiptamanna 2020


Reykjavík, 3. mars 2020

I. Almennt

Ríkisskattstjóri hefur á grundvelli samstarfs við Félag löggiltra endurskoðenda, FLE, og Félag bókhaldsstofa, FBO, ákveðið að fagaðilar, þ.m.t. endurskoðendur og bókarar, fái samkvæmt bréfi þessu heimildir til rýmri framtalsskila en almennt gildir. Eru þær sérstöku heimildir þannig umfram almenna framtalsfresti, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra, dags. 27. janúar 2020, nr. 80/2020, sem birt var í B-deild stjórnartíðinda 3. febrúar sl. Hafa af þessu tilefni verið settar viðmiðanir og skilyrði, svo sem síðar greinir í bréfi þessu í köflum II. - V.

Notkun frestlista var hætt á framtalsárinu 2017 og í þeirra stað voru teknir upp skilalistar. Í því hugtaki felst að fagaðili útfylli á heimasíðu ríkisskattstjóra lista yfir þá lögaðila sem hann hefur tekið að sér að skila skattframtali fyrir í ár, sbr. kafla III. Skilalista skal skrá á slóðinni skatturinn.is/skil. Ekki er gerð krafa um skilalista fyrir einstaklinga.

II. Um sérstök skilyrði og tímafresti við skil á ársreikningum

Framlenging á almennum skilafresti skattframtala lögaðila samkvæmt skilalistum tekur til þeirra endurskoðenda og bókara sem fallast á að fara að þeim skilmálum sem settir eru í bréfi þessu. Framlenging á skilafresti 2020 miðast alfarið við rafræn skil á skattframtölum og viðkomandi fylgiblöðum framtalsins, þar með talið ársreikningi eftir því sem við á, sbr. það er að neðan greinir.

Athygli er vakin á því að almenn skylda til að skila ársreikningi með skattframtali tekur þó ekki til þeirra örfélaga, sem nýta sér heimild til að skila efnahags- og rekstraryfirliti til Ársreikningaskrár skv. 1. gr. reglugerðar nr. 974/2016, um framsetningu og innihald ársreikninga örfélaga byggt á skattframtölum („Hnappurinn“).

Þá skal vakin athygli á mikilvægi þess að staðin séu skil á ársreikningum til Ársreikningaskrár með rafrænum hætti og innan lögboðins skilafrests, sem er 31. ágúst ár hvert. Framangreind dagsetning skal framvegis vera ófrávíkjanleg samkvæmt ákvörðun atvinnu– og nýsköpunarráðuneytisins.

Framangreindur frestur til skila á ársreikningum tekur þó ekki til örfélaga, sbr. a–lið 11. tölul. 2. gr. laga nr. 3/2006, sem ræðst af heimild skv. 2. mgr. 109. gr., sbr. 3. gr. tilvitnaðra laga til skila á rekstrar- og efnahagsyfirliti (Hnappsreikningi). Frestur til að skila umræddum yfirlitum er til jafnlengdar framlengdum skilafresti á skattframtölum lögaðila, sem er til 2. október nk. Sérstök athygli er vakin á því að heimild örfélaga til að skila rekstrar- og efnahagsyfirliti kann þó að takmarkast af ákvæðum 8. mgr. 3. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, og er auk þess bundin við að einungis sé skilað svokölluðum Hnappsreikningi á grundvelli skattframtals; RSK 1.04, sbr. heimild í lokamálsgrein 1. gr. reglugerðar nr. 974/2016.

Skilafrestur ársreikninga allra lögaðila til ársreikningaskrár vegna rekstrarársins 2019, annarra en örfélaga, rennur þannig út þann 31. ágúst 2020 og beiting sekta vegna vanskila á ársreikningum miðast því við framangreint tímamark.

Að lokum skal ítrekað að skilafrestur skattframtala stórra félaga er til 31. maí og skilafrestur til ársreikningaskrár er samkvæmt framansögðu 31. ágúst.

III. Um skil á skattframtölum 2020

  1. Framtölum einstaklinga utan atvinnurekstrar skal skilað með jöfnum hætti innan framtalstímabilsins 29. febrúar til 14. apríl og framtölum einstaklinga með atvinnurekstur með sama hætti til 22. apríl.
  2. Skattframtölum stærri lögaðila skal skilað fyrir 31. maí og með jafnri dreifingu. Til stórra lögaðila teljast þeir sem eru með veltu yfir 600 milljónum kr. og eignir yfir 300 milljónum kr.
  3. Skattframtölum minni lögaðila, þ.e. undir framangreindum stærðarmörkum, skal skilað með sem jafnastri dreifingu frá upphafi framtalstímabils 1. febrúar til 2. október, sem er lokaskiladagur í ár og er sá skiladagur endanlegur. Tíminn sem unnt er að skila telur um átta mánuði og ef skil væru alveg með jöfnum hætti bæri að skila um 12,5% af heildarfjöldanum í hverjum mánuði. Áréttað skal því að haldið sé við sem jöfnust skil, þannig að ekki komi til þess að hámark skila í júlí og ágúst fari fram úr 40%. Þá skal tekið fram sérstaklega að uppsöfnuð lokaskil í september skulu ekki fara fram úr 20%, þannig að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana.

Endurskoðendur og bókarar skulu hafa útfyllt skilalista á heimasíðu ríkisskattstjóra (skatturinn.is/skil) fyrir 1. apríl nk. vegna þeirra lögaðila undir stærðarmörkum, sbr. 3. tölul., sem þeir annast skil fyrir. Á skilalista komi m.a. fram kennitala félags, netfang og fyrirhugaður skilamánuður hvers einstaks lögaðila, sem ætlunin er að annast skil fyrir.

IV. Almenn skilyrði

Almennt skal gæta eftirfarandi atriða við skil á skattframtölum, ársreikningum og öðrum framtalsgögnum:

Framtöl einstaklinga:

  • Réttilega útfyllt eyðublað RSK 4.11, sem uppfyllir jafnframt öll skilyrði III. kafla laga um bókhald, telst fullnægjandi sem ársreikningur með framtali einstaklings í rekstri. Sé eðli starfseminnar hins vegar þannig að sundurliðun á tekjum, gjöldum, eignum og skuldum samkvæmt RSK 4.11 gefi ekki skýra mynd af henni, skal sérstakur ársreikningur ásamt skýringum og sundurliðunum fylgja framtali ásamt RSK 4.11. eða eftir atvikum RSK 1.04, sbr. 7. gr. augl. nr. 80/2020.
  • Framtali lögaðila; RSK 1.04, sem annað hvort hefur ekki heimild eða nýtir sér ekki heimild til að nota „Hnappinn“, skal fylgja undirritaður ósamandreginn ársreikningur ásamt skýringum og sundurliðunum. Aðrir lögaðilar, sem heimild hafa og nýta sér „Hnappinn“, þurfa ekki samhliða framtalsskilum að senda með sérstakan ársreikning. Fjárhæðir á RSK 1.04 skulu grundvallast á ársreikningi hvers einstaks lögaðila vegna rekstrar hans, óháð því hvort framteljandi hefur stöðu móður- eða dótturfélags innan fyrirtækjasamstæðu. Í þeim tilfellum, þegar ríkisskattstjóri hefur heimilað samsköttun, skv. 55. gr. laga nr. 90/2003, skal að auki fylgja samstæðureikningur.
  • Ef framteljandi gerir út skip eða bát, sem stundar fiskveiðar, skal gera grein fyrir afla­verð­mæti og aflamagni pr. fisktegund og heildarkostnaði við útgerð viðkomandi skips eða báts á sérstöku yfirliti, RSK 4.29, í framtalsskilunum.
  • Þeir lögaðilar sem eiga í viðskiptum við tengda aðila (e. transfer pricing) og falla undir ákvæði um skjölunarskyldu skv. 5. mgr. 57. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu staðfesta skjölunarskylduna og skila með framtalinu forminu RSK 4.28.
  • Ef framteljandi á eignarhlut eða er ráðandi aðili í félagi (CFC) í lágskattaríki, skal gera grein fyrir slíkum eignarhlut og tekjum af honum á sérstakri skýrslu, RSK 4.25, í framtalsskilunum.
  • Ársreikningi og öðrum nauðsynlegum fylgiskjölum með skattframtali skal skila rafrænt á sama tíma og skattframtali.
  • Ef rafrænum ársreikningum er skilað ber að gera það annað hvort samhliða sendingu skattframtals úr framtalsforriti eða á þjónustuvefnum skattur.is. Á það jafnt við um ársreikninga lögaðila sem og ársreikninga einstaklinga í atvinnurekstri.

V. Eftirfylgni

Almenn ákvæði X. - XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, gilda þegar almennum framtalsfresti er lokið. Sama á við þegar skilafrestur rennur út, þ.e. að framteljandi sætir áætlun sé skilað utan framangreindra lokafresta.

Ríkisskattstjóri mun senda framteljendum ábendingar þegar skilafrestur er að renna út og afrit slíkra tölvupósta fer mögulega einnig til viðkomandi endurskoðenda og bókara. Jafnframt mun endurskoðendum og bókurum, eftir því sem ástæða er til, verða gerð grein fyrir stöðu og frávikum skila í einstökum tilvikum.

Athygli er vakin á því að meginforsendan fyrir því að einstökum fagaðilum eða skrifstofum fagaðila verði veittur framlengdur skilafrestur umfram auglýstan almennan skilafrest 31. maí á skattframtölum lögaðila er að útfylltur verði skilalisti á heimasíðu ríkisskattstjóra. Hefur frestur til að útfylla skilalista verið ákveðinn 1. apríl n.k. vegna lögaðila undir fyrrgreindum stærðarmörkum.

 

Virðingarfyllst
f. h. ríkisskattstjóra

Ingvar J Rögnvaldsson Karl Ó Magnússon
Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum