Sjálfseignastofnanir með staðfesta skipulagsskrá

Sjálfseignastofnanir með staðfesta skipulagsskrá starfa skv. lögum nr. 19/1988 og sér sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra um staðfestingar á skipulagsskrám. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu sýslumanna.

Eftir að skipulagsskrá hefur fengið staðfestingu sýslumanns er sótt um kennitölu hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra með því að fylla út eyðublað 17.01 og skila inn ásamt afriti af staðfestu skipulagsskránni sem eru þá samþykktir stofnunarinnar.

Einnig þarf að skila inn tilkynningu um raunverulega eigendur.

Í þeim félögum þar sem enginn eigandi er þá er það sá/þeir sem raunverulega stjórna starfsemi félagsins sem teljast raunverulegir eigendur. Þetta geta verið stjórnarmenn, framkvæmdastjóri eða einhver einstaklingur / einstaklingar sem teljast stjórna starfseminni. Félögin sjálf verða að meta hver eða hverjir raunverulega stjórna starfseminni, við getum ekki ráðlagt hvað eigi að skrá, sjá nánar upplýsingar um skráningu raunverulegra eigenda.

Eingöngu er hægt að skila á pappír fyrir nýskráningar. Áður skráð félög þurfa að skila inn upplýsingum um raunverulega eigendur rafrænt.

Hægt er að koma með umsókn í afgreiðslu okkar, senda í pósti eða skanna inn og senda í tölvupósti á fyrirtaekjaskra@skatturinn.is

Allar breytingar á þegar skráðum sjálfseignastofnunum skal tilkynna til sýslumannsins á Norðurlandi vestra.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Lög um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988
Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum