Ákvarðanir vegna reikningsskila á árunum 2012 til 2014

19.11.2015

ESMA hefur birt útdrátt nr. 16 sem inniheldur ákvarðanir eftirlitsaðila á tímabilinu ágúst 2012 fram til mars 2014.

Ársreikningaskrá ríkisskattstjóra hvetur þá sem koma að beitingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla IFRS, til að kynna sér úrskurði EECS.

EECS er samráðsvettvangur þar sem allir eftirlitsaðilar innan ESB og á EES svæðinu koma saman til að skiptast á sjónarmiðum og ræða reynslu af eftirliti með reikningsskilum þeirra félaga sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, IFRS. Þar með talið að greina og ræða ákvarðanir sem eru teknar af einstökum eftirlitsaðilum innan EES með það að markmiði að samræma ákvarðanir eftirlitsaðila.

Gagnabanki EECS hefur að geyma ákvarðanir eftirlitsaðila. European Securities and Markets Authority (ESMA) birtir reglulega útdrætti úr þeim með það að markmiði að auka gegnsæi fyrir markaðsaðila sem beita alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, IFRS, við gerð og framsetningu reikningsskila sinna.

Útdráttur #16

Hinn 18. nóvember 2014 birti ESMA útdrátt nr. 16 úr gagnabanka EECS. Hann inniheldur ellefu ákvarðanir sem teknar voru af eftirlitsaðilum á Evrópska efnahagssvæðinu vegna reikningsskila á árunum 2012 til 2014 og er að finna á heimasíðu ESMA.

Undir liðnum "Investment and Reporting" er að finna kaflann IFRS Enforcement, sem hefur að geyma allar skýrslur varðandi þetta efni. 


Áskrift að IFRS tilkynningum

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum