Slit samlagsfélags

Félagsmenn þurfa að samþykkja félagsslit á félagsfundi. Í framhaldinu þarf að skila inn til fyrirtækjaskrár tilkynningu um slit samlagsfélags. Tilkynningareyðublöð má nálgast hér og þurfa allir félagsmenn að undirrita tilkynninguna.

Vinsamlegast hafið í huga að til þess að hægt sé að slíta félagi gæti þurft að skila inn eftirfarandi gögnum:

  • Afskráningu af launagreiðenda- og/eða virðisaukaskattskrá (sjá eyðublað hér).
  • Skattframtölum fyrri ára hafi þeim ekki verið skilað.
  • Ársreikningum til ársreikningaskrár beri félaginu að skila ársreikningum til opinberrar birtingar.

Athygli er vakin á því að ábyrgð félagsmanna fellur ekki niður við slit og bera félagsmenn ábyrgð á greiðslu skulda í samræmi við þá ábyrgð sem þeir hafa tekið á sig í félagssamningi.

 

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum