Forsíðugreinar fyrirtækjaskrár
Fyrirsagnalisti
Fyrirtækjaskrá er flutt í Katrínartún 6
Afgreiðsla fyrirtækja- og ársreikningaskrár er flutt í Katrínartún 6.
Opnunartími er sem áður virka daga frá 09:00-15:30 nema á föstudögum 09:00-14:00
Skil á ársreikningum til opinberrar birtingar
Frá og með mánudeginum 24. júlí 2023 verður ekki lengur tekið á móti ársreikningum eða samstæðureikningum á pappír. Öllum ársreikningum skal skilað í gegnum þjónustuvef embættisins, þ.e. www.skattur.is.
Frestur til skila ársreikningi er 31. ágúst
Skila ber ársreikningi innan mánaðar eftir að reikningurinn er samþykktur á aðalfundi félags, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.
Ný gjaldskrá tekur gildi
Hinn 15. janúar 2018 breyttist gjaldskrá Lögbirtingablaðsins sem felur í sér að gjaldskrá fyrirtækjaskrár mun taka breytingum til samræmis við það.
Hnappurinn - rafræn skil á ársreikningi
Nú geta þau félög sem falla undir skilgreiningu á örfélagi útbúið ársreikning út frá innsendu skattframtali og sent til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra.
Ekki þarf aðkomu endurskoðanda eða skoðunarmanns við gerð slíks ársreiknings.
Skráning raunverulegra eigenda
Á grundvelli aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka ber að skrá raunverulega eigendur allra lögaðila sem stunda atvinnurekstur á Íslandi eða eru skráðir í fyrirtækjaskrá.
Eignarhald skv. jarðalögum
Samkvæmt jarðalögum ber lögaðilum sem uppfylla tiltekin skilyrði að upplýsa um beint og óbeint eignarhald sitt, raunverulega eigendur sína og eftir atvikum stjórnarmenn og aðra stjórnendur.