Sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri

Sjálfseignastofnanir í atvinnurekstri eru skráðar í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Skila þarf inn stofngögnum til fyrirtækjaskrár og greiða skráningargjald. Hægt er að greiða með reiðufé, debetkorti eða leggja inn á reikning (sjá gjaldskrá).

Afgreiðslutími umsóknar um skráningu sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri er almennt um tíu til tólf virkir dagar frá því að gögn eru lögð inn til fyrirtækjaskrár séu þau fullnægjandi og greiðsla (eða greiðslukvittun) fylgir með gögnunum. Hægt er að senda skannað afrit af stofngögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is Ekki er nauðsynlegt að skila inn frumritum af gögnum.

Lágmarksstofnfé skal vera 1.000.000 kr. og skal allt stofnfé vera greitt við skráningu. Ef stofnfé er greitt í öðru en peningum skal koma staðfesting frá lögmanni eða löggiltum endurskoðanda um að viðkomandi eign sé til staðar.

Kennitala verður til við skráningu félags. ÍSAT-númer (íslensk atvinnugreinaflokkun) er skráð við stofnun samkvæmt upplýsingum stofnenda um aðalstarfsemi félagsins.

Stofngögn sem leggja þarf inn til skráningar eru auk tilkynningareyðublaðs, stofnfundargerð, samþykktir (skipulagsskrá) og tilkynning um raunverulega eigendur.

Hér má nálgast sýnishorn af nauðsynlegum stofngögnum í word-skjali. Hægt er að breyta og aðlaga að eigin þörfum, síðan prenta út og undirrita.


Gæta þarf þess að:

  • Tilkynningarblað sé fyllt út í samræmi við stofngögn.
  • Rithandarsýnishorn séu rétt.
  • Allar undirskriftir séu réttar.

 Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum