Vanskil

Það er hagur gjaldanda að greiða skattskuldir sínar sem fyrst til að koma í veg fyrir kostnað við innheimtuaðgerðir og dráttarvexti sem leggjast á kröfuna við vanskil. Bent er á að kostnaður vegna innheimtu er óafturkræfur, gjaldandi ber þann kostnað jafnvel þó um innheimtu áætlaðra skatta og gjalda sé að ræða.


Vanskilakröfur

Gjöld sem ekki hafa verið greidd á gjalddaga eru vanskilakröfur (skuldir). Innheimtumanni ríkissjóðs er skylt að innheimta allar kröfur. Það frestar ekki íþyngjandi vanskilaúrræðum þótt skattskýrslu hafi ekki verið skilað eða skattálagning verið kærð.

Lesa meira

Greiðsluáætlanir

Með greiðsluáætlun eru vanskil innheimt á lengri tíma og því léttist greiðslubyrði gjaldanda. Hagsmunum ríkissjóðs er einnig þjónað þar sem undirskrift greiðsluáætlunar rýfur fyrningu kröfunnar.

Lesa meira

Launaafdráttur

Vinnuveitanda er skylt að halda eftir af launum gjaldanda sé þess krafist af innheimtumanni ríkissjóðs. Heimild er til að ganga á vinnuveitanda ef ekki er brugðist við kröfum innheimtumanns. 

Lesa meira

Fjárnám

Fimmtán dögum eftir birtingu greiðsluáskorunar í blöðum eða með stefnuvotti er innheimtumanni heimilt að senda sýslumanni fjárnámsbeiðni hafi gjaldandi ekki greitt kröfuna að fullu.

Lesa meira

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum