Gjaldþrotaskipti

Um gjaldþrotaskipti gilda lög númer 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl. Eftir að árangurslaust fjárnám hefur verið gert hjá skuldara hafa kröfuhafar þrjá mánuði til þess að krefjast gjaldþrotaskipta. Með gjaldþrotaskiptum er átt við lögskipaða aðgerð sem fer fram í þeim tilgangi að yfirfæra eignir til kröfuhafa. Um er að ræða fullnustugerð sem hefst með dómsúrskurði, upphafstíminn er úrskurður dómara en hann skipar í kjölfarið skiptastjóra sem fer með framkvæmd gjaldþrotaskiptanna.

Hverjir geta krafist gjaldþrotaskipta?

  • Einstaklingar geta krafist þess að bú þeirra verði tekið til gjaldþrotaskipta geti þeir ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna sína þegar kröfur þeirra falla í gjalddaga og ekki er sennilegt að greiðsluörðugleikar þeirra muni líða hjá innan skamms tíma samanber 1. málsgrein 64. greinar gjaldþrotaskiptalaga.
  • Bókhaldsskyldum aðilum ber skylda til að krefjast gjaldþrotaskipta á búum sínum geti þeir ekki staðið í skilum og ekki sé útlit fyrir að það ástand breytist, samanber 2. málsgrein 64. greinar.
  • Mun algengara er að kröfuhafar óski gjaldþrotaskipta að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samanber 65. grein gjaldþrotaskiptalaga. Aðrir en kröfuhafar geta ekki krafist gjaldþrotaskipta þar sem þeir einir eiga lögvarinna hagsmuna að gæta.

Krafa um gjaldþrotaskipti á grundvelli árangurslauss fjárnáms

Eftir að gert hefur verið árangurslaust fjárnám hjá skuldara er kröfuhafa heimilt að krefjast gjaldþrotaskipta hjá honum innan þriggja mánaða. Þá er öllum öðrum kröfuhöfum heimilt að krefjast gjaldþrotaskipta á grundvelli árangurslauss fjárnáms annarra kröfuhafa innan sömu tímatakmarkana.

Úrræði gjaldanda

Gjaldandi getur komist hjá gjaldþrotaskiptum með því að gera  greiðsluáætlun um greiðslu skattskuldarinnar hjá innheimtumanni ríkissjóðs. Greiða verður helming kröfunnar til þess að gjaldþrotaskiptabeiðni sé afturkölluð og eftirstöðvum má dreifa á allt að sex mánuði með möguleika á framlengingu. 

Sé um að ræða áætlaða skatta getur gjaldandi lagt fram staðfestingu á framtalsskilum ásamt bráðabirgðaútreikningi frá ríkisskattstjóra og önnur staðfest afrit, þar með talið kæru til skattyfirvalda. Þá er heimilt að miða greiðslur og greiðsluáætlun við væntanlega álagningu eftir að ríkisskattstjóri hefur tekið framtal til greina.

Hægt er að gera greiðsluáætlun hvenær sem er eftir að árangurslaust fjárnám hefur verið gert áður en gjaldþrotaskiptaúrskurður er kveðinn upp og skiptastjóri skipaður.  

Nánari upplýsingar

Dómsmálaráðuneytið

Lög og reglur

Lög nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjalda
Lög nr. 65/1996 um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga
Lög nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

 

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum