Innheimta skattskulda maka

Sérstök ábyrgðarregla gildir um greiðslu þing- og sveitarsjóðsgjalda. Reglan felur í sér að hjón og samskattað sambúðarfólk bera sjálfskuldarábyrgð á greiðslu þeirra þing-og sveitarsjóðsgjalda sem á þau eru lögð.

Samkvæmt reglunni er samskattaður maki ábyrgur fyrir greiðslu þing- og sveitarsjóðsgjalda. Ábyrgðin gildir um skuldir sem myndast á þeim árum sem samsköttun varir. Það hefur ekki áhrif á ábyrgðina þó samsköttun ljúki, ábyrgðin helst áfram vegna þeirra ára sem samsköttunin varði. Heimilt er að nota inneignir sem myndast á öðrum álagningarárum til greiðslu skuldarinnar.

Hafi annað hjóna/samsköttunaraðila greitt skattskuldir hins á greiðandinn lögvarinn endurkröfurétt á hendur aðalskuldara sem átti að greiða skuldina.

Lög og regla

Lagaheimild reglunnar er í 116. grein laga númer 90/2003, um tekjuskatt. Tilvísanir í þessa grein er að finna í eftirfarandi lögum og gildir um viðkomandi skatta og gjöld:


Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum