Vottorð um skuldleysi

Skuldleysisvottorð eru gefin út af innheimtumönnum og til staðfestingar að ekki séu til staðar gjaldfallnar skattkröfur á kennitölu einstaklinga og fyrirtækja.

Sækja má um skuldleysisvottorð á Ísland.is. 

Opna umsókn

Áður en skuldleysisvottorð er mælt með því að skoða stöðu við ríkissjóð og stofnanir á mínum síðum Ísland.is Aðeins er hægt að sækja vottorðið ef staðan er 0 kr.

Til þess að fá skuldleysisvottorð þarf að greiða alla gjaldfallna skatta og gjöld. Athugið að kröfur geta verið gjaldfallnar þó þær séu ekki komnar á eindaga og geta komið í veg fyrir afgreiðslu vottorðsins.

  • Vottorðið er á íslensku.

Fyrirtæki

Til þess að sækja vottorð fyrir fyrirtæki eða lögaðila þá þarf innskráður notandi að vera skráður prókúruhafi fyrirtækis í fyrirtækjaskrá Skattsins.

Nánari upplýsingar

Ítarlegri upplýsingar um hreyfingar og stöðu einstaklinga og lögaðila við ríkissjóð má finna undir flokknum fjármál á Mínum síðum á Ísland.is

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Lög nr. 150/2019 um innheimtu opinberra skatta og gjalda

Annað

Greiða verður alla gjaldfallna skatta og gjöld svo hægt sé að gefa út skuldleysisvottorð. Í þessu sambandi er bent á dóm Hæstaréttar í máli nr. 525/2011.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum