Aðgerðapakki tvö frá stjórnvöldum
Ríkisstjórn Íslands hefur nú kynnt aðgerðapakka tvö sem er framhald efnahagsaðgerða stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Í kynningu pakkans má sjá að nokkur úrræði snúa að Skattinum.
Upplýsingar um úrræðin, fyrirkomulag umsókna, skilyrða o.þ.h. verður birt á heimasíðu Skattsins um leið og ný lög hafa verið samþykkt og nánari upplýsingar og útfærsluatriði liggja fyrir.