Fréttir og tilkynningar


Álagning einstaklinga 2019 – lækkun launaafdráttar

25.5.2019

Inneignir (vaxtabætur og barnabætur, ofgreidd staðgreiðsla) eru greiddar inn á bankareikninga 31. maí 2019. Létta má mánaðarlega greiðslubyrði með gerð greiðsluáætlana hjá innheimtumönnum ríkissjóðs.

Ríkisskattstjóri er innheimtumaður í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og í Kjósarhrepp. Annars staðar á landinu sjá sýslumenn um innheimtu opinberra gjalda.

Upplýsingar um innheimtumenn

Almennar fyrirspurnir um innheimtu opinberra gjalda má senda á netfangið innheimta@rsk.is.

Lækkun launaafdráttar

Við álagningu þing- og sveitarsjóðsgjalda er launagreiðendum send krafa um að þeir haldi eftir hluta af launum starfsmanna sinna sem skulda skatta og skili inn til innheimtumanns ríkissjóðs. Ef launþegi sem skuldar skatta vill lækka þá fjárhæð sem haldið er eftir hefur hann möguleika á að gera greiðsluáætlun hjá ríkisskattstjóra (eða þeim innheimtumanni ríkissjóðs sem á kröfuna) til að lækka launaafdráttinn. Skatturinn er þá greiddur upp á lengri tíma sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en lægri mánaðarlega greiðslubyrði. Launaafdrætti er eingöngu beitt vegna þing- og sveitarsjóðsgjalda.

Launþegi þarf að fylgjast með því að tekið sé af launum í samræmi við álagningarseðil. Ef afdráttur af launum er ekki greiddur til innheimtumanns er mögulegt að koma með launaseðilinn til ríkisskattstjóra (eða þess innheimtumanns sem á kröfuna) og sýna fram á að tekið hafi verið af launum hans. Ef ekki er tekið af launum og enginn greiðsluseðill sendur er gjaldendum bent á að hafa samband við ríkisskattstjóra í síma 442-1950, eða viðeigandi innheimtumann, og fá að millifæra greiðslu. Einnig er hægt að greiða hjá gjaldkera á 5. hæð Tollhússins, Tryggvagötu 19, og sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins.

Greiðsluerfiðleikar

Ef einstaklingur er ekki í vinnu eða starfar sjálfstætt fær hann sendan greiðsluseðil vegna vangoldinna skatta. Eigi hann í erfiðleikum með að greiða er hægt að láta gera greiðsluáætlun hjá innheimtumanni ríkissjóðs. Þá er greiðslunum dreift yfir lengra tímabil sem hefur í för með sér aukinn vaxtakostnað en léttari mánaðarlega greiðslubyrði.

Áætlanir

Innheimtuaðgerðir eru þær sömu hvort sem skattur er lagður á samkvæmt framtali eða áætlaður. Ef um áætlun er að ræða er mikilvægt að skila inn framtölum til að fá álagningu skatta leiðrétta. Hafi það verið gert er hægt að miða innheimtu skatta við bráðabirgðaútreikning. Áríðandi er fyrir skattgreiðanda að ganga frá greiðsluáætlun í slíkum tilvikum því annars getur krafan farið í innheimtuferli sem hefur í för með sér kostnað og óþægindi.

Í öllum tilvikum borgar það sig að hafa samband við ríkisskattstjóra eða viðeigandi innheimtumann sem fyrst ef upp koma greiðsluerfiðleikar. Með álagningarseðlinum er sendur innheimtuseðill og á honum kemur fram hvaða innheimtumaður ríkissjóðs er með álagninguna til innheimtu.

Skuldajöfnuður

Innheimtumanni ríkissjóðs ber að skuldajafna inneignum við gjaldfallnar kröfur gjaldanda. Vakin er athygli á að skuldajöfnunarheimild á milli samskattaðra maka varðandi þing- og sveitarsjóðsgjöld. Barnabótum er ekki skuldajafnað nema upp í ofgreiddar barnabætur.


Nánar um skuldajöfnuð 

Þjónustufulltrúar

Þjónustufulltrúar lögfræðideildar útbúa greiðsluáætlanir um lækkun launaafdráttar og frestun innheimtuaðgerða vegna krafna sem ríkisskattstjóri innheimtir. Þeir eru staðsettir á 5. hæð Tollhússins, Tryggvagötu 19 og til viðtals á opnunartíma embættisins, frá kl. 09:00-15:30 alla virka daga, nema föstudaga en þá er opið frá kl. 09:00 til 14:00. Hægt er að ganga frá flestum greiðsluáætlunum um lækkun launaafdráttar með því að senda þjónustufulltrúum lögfræðideildar tölvupóst á netfangið vanskil@rsk.is. Yfirleitt eru margir sem leita til þjónustufulltrúa í kjölfar álagningar opinberra gjalda og því getur biðtími eftir viðtali lengst. Það getur því sparað tíma og fyrirhöfn að ganga frá greiðsluáætlun með tölvupósti.

Bílastæði

Við bendum viðskiptavinum á að oft leynast laus bílastæði í bílageymslu Hörpunnar en þaðan er stutt að ganga að Tollhúsinu.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum