Fréttir og tilkynningar


Ársskýrsla RSK vegna ársins 2017 er komin út

29.11.2018

Ársskýrsla ríkisskattstjóra fyrir árið 2017 hefur nú verið birt á vef embættisins. Farið er yfir starfsemi ársins 2017 og ýmsar tölulegar upplýsingar birtar.

Fram kemur í skýrslunni að annað sinn hafi álagning einstaklinga verið birt mánuði fyrr en verið hafði árum saman. Að sama skapi voru opnun netframtals einstaklinga og framtalsfrestir fyrr á árinu en venjan hafði verið áður. Áfram var lögð áhersla á gagnaskil og áritun upplýsinga á framtal sem leiddi til að 80% allra skattframtala einstaklinga fengu sjálfkrafa álagningu eftir vélræna yfirferð. Á framtali lögaðila var helsta breytingin aukin sundurliðun eiginfjárreikninga á efnahagshlið framtalsins. Áhersla var lögð á að framtölum lögaðila væri skilað jafnt og þétt yfir árið og að framtölum stærri lögaðila væri skilað eigi síðar en 31. maí.

Almennt er skýrslunni ætla að varpa ljósi á starfsemi embættisins í víðu ljósi. Fjallað er um þátttöku embættisins í verkefni velferðarráðuneytisins um styttingu vinnuvikunnar, tæknimál, alþjóðleg samstarfsverkefni og upplýsingaskipti svo dæmi séu tekin. Þá var hafist handa við sérgreind verkefni tengd milliverðlagningu. Auk þess má lesa úr tölulegum upplýsingum um þróun framtalsskila, fjölda kæra og erinda einstaklinga og lögaðila sem og þá þróun sem átt hefur sér stað í uppgjöri virðisaukaskatts síðustu tveggja ára.  

Ársskýrsla ríkisskattstjóra 2017, auk ársskýrslna liðinna ára eru aðgengilegar á vef embættisins.

Opna ársskýrslu 2017

Skoða eldri ársskýrslur


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum