Fréttir og tilkynningar


Svikapóstar og símtöl

5.11.2019

Undanfarið hafa einhverjum landsmönnum borist falskir tölvupóstar annars vegar og símtöl hinsvegar sem sögð eru frá ríkisskattstjóra, þar sem tilkynnt er um meinta endurgreiðslu skatta eða innheimtu skuldar.

Ríkisskattstjóri vill árétta að þessar sendingar og símtöl eru ekki frá embættinu komnar. Því er beint til fólks að opna ekki viðhengi eða hlekki í tölvupóstinum sem kunna að innihalda óværu.

Vakni einhverjar spurningar má leita til þjónustuvers RSK í síma 442 1000 eða í netspjalli


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum