Frestun á greiðslu tekjuskatts lögaðila
Heimilt er að sækja um frestun greiðslu tekjuskatts samkvæmt álagningu 2020, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Sótt er um frestun á þjónustusíðu lögaðilans og er umsóknarfrestur til 10. nóvember nk.
Heimildin nær til eftirfarandi lögaðila:
- Hlutafélög (hf)
- Einkahlutafélög (ehf)
- Samlagshlutafélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar,
- Gagnkvæm vátryggingar- og ábyrgðarfélög
- Kaupfélög, önnur samvinnufélög og samvinnufélagasambönd
Hámarksfjárhæð sem heimilt er að fresta greiðslu á er
20.000.000 kr., eða fjárhæð sem nemur álögðum tekjuskatti ársins 2020 sé hún
lægri. Uppfylla þarf tiltekin skilyrði til að frestun sé heimil.