Fréttir og tilkynningar


Heimsóknir til rekstraraðila í samtímaeftirliti ríkisskattstjóra 2018

18.2.2019

Ein af megin stoðum undir starfsemi ríkisskattstjóra er skatteftirlit og innan þess sviðs er eining sem sérhæfir sig í samtímaskatteftirliti. Starfið felst í því að rekstraraðilar eru heimsóttir og farið yfir staðgreiðsluskil launa, virðisaukaskattsskil og tekjuskráningu.

Sé tilefni til eru rekstraraðilum gefin leiðbeinandi tilmæli um úrbætur og þeim síðar fylgt eftir og skoðað hvort gerð hafi verið bragarbót á starfsháttum. Ríkisskattstjóri hefur heimild til að loka starfsstöðvum eftir ítrekuð tilmæli um úrbætur.

Teknar hafa verið saman tölur yfir heimsóknir á árinu 2018, en samtals voru 3.237 rekstraraðilar heimsóttir. Heimsóknir skiptust þannig:

Landssvæði  Fjöldi heimsókna
 Höfuðborgarsvæðið1.720
 Suðurland 501
 Norðurland 386
 Vesturland 240
 Reykjanes 303
 Austurland 87

Skipting heimsókna milli starfsgreina var með eftirfarandi hætti:

Starfsgrein  Fjöldi heimsókna
 Gisting og ferðaþjónusta837
 Veitingastaðir 232
 Verslun og þjónusta 642
 Byggingageiri 1.209
 Verkstæði og bílaþjónusta 136
 Önnur starfsemi 181

Gerðar voru athugasemdir vegna staðgreiðsluskila hjá 874 rekstraraðilum, 272 fengu tilmæli vegna virðisaukaskatts og athugasemdir vegna tekjuskráningar voru gerðar hjá 158 aðilum. Heimsóknum sem lauk án athugasemda voru alls 2.184 talsins.

Skoðað var hvort 7.464 einstaklingar væru á staðgreiðsluskrá og reyndist svo vera í 91% tilvika.

Úrræði til lokunar starfsstöðva var beitt fimm sinnum á árinu 2018.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum