Fréttir og tilkynningar


Niðurfelling álags í virðisaukaskatti

4.12.2020

Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis og óvissu í atvinnulífi hefur ríkisskattstjóri ákveðið að nýta heimild til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt.

Ákvörðunin er vegna september, október og nóvember 2020 og nær til eftirfarandi uppgjörstímabila, skilamáta og gjalddaga:

Gjalddagi Uppgjörstímabil Skilamáti
5. nóvember 2020 September 2020 Almenn mánaðarskil
16. nóvember 2020 Október 2020 Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju
7. desember 2020 September – október 2020 Almenn tveggja mánaða skil
7. desember 2020 Október 2020 Almenn mánaðarskil
15. desember 2020 Nóvember 2020 Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju


Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum