Fréttir og tilkynningar


Niðurfelling álags í virðisaukaskatti vegna maí og júní 2020

3.7.2020

Í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkt hefur í atvinnulífi og efnahag landsins hefur Skatturinn, að höfðu samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið, ákveðið að nýta heimild sína til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt sem er á eftirtöldum gjalddögum:

Meginmál
Gjalddagi Uppgjörstímabil Skilamáti 
 6. júlí 2020Maí 2020 Almenn mánaðarskil 
 15. júlí 2020Júní 2020 Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju 
 5. ágúst 2020Maí-júní 2020 Almenn tveggja mánaða skil 
 5. ágúst 2020Júní 2020 Almenn mánaðarskil 

Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum