Fréttir og tilkynningar


Niðurfelling álags í virðisaukaskatti

26.8.2020

Þar sem enn ríkir óvissa í atvinnulífi og efnahag landsins hefur enn á ný verið ákveðið að nýta heimild til að beita ekki álagi á vangreiddan virðisaukaskatt. 

Ákvörðunin er vegna júlí og ágúst 2020 og landbúnaðarskila á gjalddaga 1. september 2020 og nær til eftirfarandi uppgjörstímabila,  skilamáta og gjalddaga:

Gjalddagi Uppgjörstímabil Skilamáti
1. september 2020 Janúar-júní 2020 Landbúnaðarskil, sex mánaða uppgjörstímabil
7. september 2020 Júlí 2020 Almenn mánaðarskil
15. september 2020 Ágúst 2020 Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju
5. október 2020 Júlí-ágúst 2020 Almenn tveggja mánaða skil
5. október 2020 Ágúst 2020 Almenn mánaðarskil
15. október 2020 September 2020 Aðilar í mánaðarskilum sem hafa verið afskráðir vegna áætlana en skráðir að nýju    

Af þeim sökum er svigrúm til greiðslu virðisaukaskatts aukið til muna eða í allt að mánuð. Sé virðisaukaskattur ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga leggjast þó á dráttarvextir frá gjalddaga.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum