Fréttir og tilkynningar


Fréttatilkynning um lok álagningar einstaklinga 2015

24.7.2015

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2015.

Forsendur álagningar, innheimta eftirstöðva og greiðsla inneigna

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2015 sem er á tekjur ársins 2014. Stærsti hluti álagðra gjalda hefur þegar verið innheimtur með staðgreiðslu opinberra gjalda. Nokkrir skattar og gjöld eru þó innheimtir eftir lok staðgreiðsluárs; útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og slysatryggingagjald. Við álagningu fer ennfremur fram uppgjör staðgreiðslu og ákvörðun á barnabótum og vaxtabótum. Þeir framteljendur sem eiga inneign eftir álagningu fá þær lagðar inn á bankareikninga 31. júlí nk.

Fjöldi framteljenda og áætlaðir aðilar

Á skattgrunnskrá 2015 voru 271.806 framteljendur. Er það fjölgun um 3.355 einstaklinga frá fyrra ári sem er 1,1% fjölgun. Framtalsskil gengu vel og staðfesting framtala var yfirleitt tímanlega á ferðinni. Að þessu sinni voru það 10.990 einstaklingar sem ekki skiluðu skattframtali og sættu áætlun opinberra gjalda eða 4,04% af heildarfjölda. Eru það talsvert færri en undanfarin ár og hafa aldrei jafn fáir sætt áætlun skattstofna. Framtalsskil hafa því batnað mikið á síðustu árum.

Rafræn framtalsgerð, pappírsframtöl eru að hverfa

Framtalsgerðin er nú, eins og fyrri ár, mun einfaldari fyrir allan þorra almennings heldur en var fyrr á árum. Þar skiptir miklu að framtöl eru að mestu fyrirframgerð með áritun upplýsinga inn á framtöl. Launamiðaskilum 2015 var fylgt eftir með heimsóknum til þeirra aðila sem ekki stóðu skil á gögnum innan auglýstra tímamarka. Betri skil gagna hafa í för með sér færri villur og nákvæmari framtalsgerð.

Rafræn stjórnsýsla hefur jafnt og þétt verið að festa sig í sessi hin síðari ár. Ríkisskattstjóri hefur leitast við að gera samskipti milli skattaðila og ríkisskattstjóra í auknum mæli rafræn. Við álagningu opinberra gjalda árið 2015 er enn nýtt metið slegið hvað það varðar. Aldrei fyrr hafa jafnmargir framteljendur skilað rafrænu framtali og við álagningu 2015. Framtöl til vinnslu voru 260.910 og af þeim voru pappírsframtöl 660 eða 0,25%. Pappírsframtöl eru þannig nánast horfin og rafræn skattframtöl eru orðin 99,75% af skiluðum framtölum.

Framlagning álagningarskrár og kærufrestur

Ríkisskattstjóri mun láta álagningarskrár liggja frammi á starfsstöðvum embættisins um allt land næstu tvær vikur eða til 7. ágúst nk., í samræmi við 98. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Kærufrestur rennur út 24. ágúst nk.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun í fréttatilkynningu síðar í dag eða um helgina gera grein fyrir áhrifum á tekjuöflun ríkissjóðs.

Reykjavík 24. júlí 2015,
Ríkisskattstjóri


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum