Fréttir og tilkynningar


Til endurskoðenda, bókhaldsstofa og viðurkenndra bókara.

12.9.2014

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að framlengja síðasta skilafrest á lögaðilaframtölum framtalsársins 2014, vegna rekstrar á árinu 2013 til og með föstudagsins 19. september 2014.

Frestur þessi er einvörðungu fyrir þá sem atvinnu hafa af framtalsgerð.

Þótt formlegum fresti ljúki 19. september 2014 verður leitast við að taka við innsendum framtölum eftir þann tíma, eftir því sem tök verða á, enda standist þau framtöl skoðun.

Ríkisskattstjóri mælist eindregið til þess að skattframtölum lögaðila sé skilað jafnóðum og lokið sé við gerð þeirra.

Daganna 20. og 22. september 2014 mun ríkisskattstjóra birta auglýsingu í dagblöðum um að allir frestir til að skila framtölum séu liðnir. Sömuleiðis verða tölvupóstar sama efnis sendir til forráðamanna lögaðila.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum