Fréttir og tilkynningar


Áskorun vegna skila ársreikninga

18.9.2017

Lokafrestur til að skila ársreikningum til ársreikningaskrár RSK rennur út 20. september 2017

Áskorun um skil á ársreikningum hefur nú verið birt á þjónustusíðu ( skattur.is ) þeirra félaga, sem ekki hafa staðið skil á ársreikningi sínum til ársreikningaskrár. Forráðamenn viðkomandi félaga eru hvattir til að bregðast skjótt við og senda ársreikning rafrænt, þannig að ekki þurfi að koma til sektarákvörðunar.

Unnt er að finna á rsk.is yfirlit yfir þau félög sem ekki hafa skilað ársreikningi. Vakin er athygli á að örfélög sem hafa skilað skattframtali geta nýtt sér Hnappinn. Þá er farið inn á þjónustusíðu ríkisskattstjóra skattur.is og valið að láta ríkisskattstjóra útbúa ársreikning félagsins og skila til ársreikningaskrár.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum