Fréttir og tilkynningar


Rafræn fyrirtækjaskrá RSK

14.11.2017

Ríkisskattstjóri hefur undanfarið unnið að gerð rafrænnar fyrirtækjaskrár fyrir nýskráningu félaga og breytingar á skráningu þeirra. 

Mun þessi rafræna skráning fara fram á þjónustuvef ríkisskattstjóra, www.skattur.is. Búið er að opna fyrsta áfanga rafrænnar fyrirtækjaskrár, þ.e. að stofna og gera breytingar á skráningu einkahlutafélaga, en endanleg útgáfa skrárinnar er enn í vinnslu.

Með rafrænni fyrirtækjaskrá er öll skráning upplýsinga við stofnun einkahlutafélags rafræn og fer undirritun gagna eingöngu fram með rafrænum skilríkjum. Þegar búið er að skrá inn þær upplýsingar sem krafist er við stofnun félags verða stofnskjölin sjálfkrafa til í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Ekki er því lengur nauðsynlegt fyrir viðskiptavini RSK að útbúa stofngögnin sjálfir, en hægt er að hlaða upp eigin gerð stofnskjala ef ástæða er til. Þegar stofnskjölin hafa verið samþykkt er sendur tölvupóstur til allra þeirra sem þurfa að undirrita skjölin rafrænt. Samhliða er stofnuð krafa fyrir skráningargjaldinu í heimabanka skráningaraðila. Þegar allir hlutaðeigandi hafa rafrænt undirritað nauðsynleg gögn og skráningargjaldið hefur verið greitt tekur ríkisskattstjóri við skráningu félagsins og afgreiðir hana. Mun þetta fyrirkomulag stytta afgreiðslutíma nýskráninga verulega en áætlað er að skráning einkahlutafélaga muni taka tvo virka daga í stað tíu áður. Í byrjun má þó búast við einhverjum minniháttar töfum á afgreiðslu nýskráninga og breytinga.

Til að skrá einkahlutafélag rafrænt, og gera breytingar á skráningu, þarf að fara inn á þjónustusíðuna www.skattur.is undir:
Almennt > Fyrirtækjaskrá > Nýskráning

Hér má sjá stutt kynningarmyndband um rafræna fyrirtækjaskrá

Maður situr við skrifborð, snýr baki í lesanda og vinnur við tölvuna sína

Upplýsingar um rafræna fyrirtækjaskrá

Allar nánari upplýsingar um rafræna fyrirtækjaskrá veitir starfsfólk fyrirtækjaskrár í síma 442 1000.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum