Fréttir og tilkynningar


Opnað fyrir skil á skattframtali 2019

1.3.2019

Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali einstaklingar 2019, vegna tekna 2018, á þjónustuvef ríkisskattstjóra. Frestur til að skila er til 12. mars nk. en hægt verður að sækja um viðbótarfrest til 15. mars.

Helstu upplýsingar um laun, fasteignir, bifreiðar, bankainnstæður, vaxtatekjur, hlutabréfaeign, arð, skuldir og fleira eru fyrirfram áritaðar inn á framtalið. Er því fljótlegt og einfalt að yfirfara framtalsupplýsingarnar bæta við þar sem vantar upp á og staðfesta að lokum.

Auðkenning

Til að opna framtalið þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil frá RSK. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Ríkisskattstjóri mælir með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu.

Upplýsingar um rafræn skilríki

Auðkenning barna yngri en 18 ára

Allir þeir sem náðu 16 ára aldrei á árinu 2018 þurfa að skila skattframtali í fyrsta sinn nú árið 2019. Þeir sem ekki eiga rafræn skilríki geta sótt um veflykil og nýtt hann til auðkenningar á þjónustusíðu RSK. Mögulegt er að fá veflykil sendan í pósti á lögheimili eða sendan í heimabanka viðkomandi.
Sækja veflykil

Erlendis búsettir

Þeir sem búsettir eru erlendis geta þurft að skila skattframtali á Íslandi þrátt fyrir búsetu erlendis s.s. þegar viðkomandi hefur fengið tekjur frá Íslandi á árinu 2018, á eignir á Íslandi, sækist eftir skattalegri heimilisfesti svo dæmi séu tekin.

Eigi aðilar erlendis búsettir þess ekki kost að nýta sér rafræn skilríki og eigi ekki nú þegar virkan veflykil er hægt að sækja um að fá nýjan veflykil sendan. Fylla þarf út þar til gert form og verður beiðni um veflykil afgreidd eins fljótt og auðið er.
Sækja veflykil erlendis búsettra

 Álagning

Niðurstaða álagningar mun liggja fyrir eigi síðar en 31. maí 2019 og verður hún birt á þjónustuvef RSK.

Opna þjónustuvef RSK


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum