Fréttir og tilkynningar


Opnað fyrir skil á skattframtali 2020

28.2.2020

Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali einstaklinga 2020, vegna tekna 2019, á þjónustuvef Skattsins. Frestur til að skila er til 10. mars nk. en hægt verður að sækja um viðbótarfrest til 13. mars.

Helstu upplýsingar um laun, fasteignir, bifreiðar, bankainnstæður, vaxtatekjur, hlutabréfaeign, arð, skuldir og fleira eru fyrirfram áritaðar inn á framtalið. Er því fljótlegt og einfalt að yfirfara framtalsupplýsingarnar bæta við þar sem vantar upp á og staðfesta að lokum.

Auðkenning

Til að opna framtalið þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Ríkisskattstjóri mælir með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu.

Upplýsingar um rafræn skilríki

Auðkenning barna yngri en 18 ára

Allir þeir sem náðu 16 ára aldri á árinu 2019 þurfa að skila skattframtali í fyrsta sinn nú árið 2020. Þeir sem ekki eiga rafræn skilríki geta sótt um veflykil og nýtt hann til auðkenningar á þjónustusíðu. Mögulegt er að fá veflykil sendan í pósti á lögheimili eða sendan í heimabanka viðkomandi.
Upplýsingar um rafræn skilríki aðila undir 18 ára
Sækja veflykil

Erlendis búsettir

Þeir sem búsettir eru erlendis geta þurft að skila skattframtali á Íslandi þrátt fyrir búsetu erlendis, t.d. þegar viðkomandi hefur fengið tekjur frá Íslandi á árinu 2019, á eignir á Íslandi, sækist eftir skattalegri heimilisfesti svo dæmi séu tekin.

Eigi aðilar erlendis búsettir þess ekki kost að nýta sér rafræn skilríki og eigi ekki nú þegar virkan veflykil er hægt að sækja um að fá nýjan veflykil sendan. Fylla þarf út þar til gert form og verður beiðni um veflykil afgreidd eins fljótt og auðið er.
Sækja veflykil erlendis búsettra

Leiðbeiningar

Framtalsleiðbeiningar er hægt að nálgast inni í framtalinu með því að smella á bláa spurningamerkið við hvern kafla. Þá er einnig hægt að fá leiðbeiningar í bæklingaformi. Vakin er sérstök athygli á leiðbeiningum fyrir þá sem ekki tala íslensku, en gerðar hafa verið einfaldar leiðbeiningar á ensku og pólsku til leiðbeiningar svo fólk geti klárað framtalsskil án aðstoðar.

Leiðbeiningabæklingur
Leiðbeiningar á ensku og pólsku

Álagning

Niðurstaða álagningar mun liggja fyrir eigi síðar en 29. maí 2020 og verður hún birt á þjónustuvef RSK.

Opna þjónustuvef RSK


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum