Fréttir og tilkynningar


Sameiginlegt eftirlit með hópbifreiðum á erlendum skráningarmerkjum og starfsmönnum

11.4.2019

Ríkisskattstjóri, tollstjóri, Samgöngustofa, Vinnumálastofnun og Lögreglustjórinn á Austurlandi munu standa fyrir sameiginlegri eftirlitsaðgerð við komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðarhafnar 16. apríl nk.

Tilgangur eftirlitsaðgerðarinnar er að athuga innflutning og skráningu á hópbifreiðum sem koma hingað til lands á erlendum skráningarmerkjum og ætlaðar eru til atvinnustarfsemi hér á landi.

Eftirlitið mun snúa að ökutækjum, ökumönnum þeirra og ef við á öðrum starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis.

Aðilar sem huga á atvinnurekstur ökutækja á erlendum skráningarmerkjum eru hvattir til að kynna sér viðeigandi lög og reglur og ganga úr skugga um að lögbundin skilyrði séu uppfyllt.

Ítarefni

Frekari upplýsingar

Upplýsingar um tímabundinn innflutning ökutækja með erlend skráningarmerki af heimasíðu tollstjóra.

Upplýsingar um undanþágur frá atvinnuleyfi vegna skammtímavinnu af heimasíðu Vinnumálastofnunar

Upplýsingar um atvinnuleyfi útlendinga af heimasíðu Vinnumálastofnunar

Registering at the Directorate of Labour

 

Tilvísanir í lög og reglugerðir

Tollalög nr. 88/2005

Reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi

Lög um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002

Lög um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda nr. 45/2007

Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Lög um tekjuskatt nr. 90/2003

Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987

Lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988

Lög um farþegaflutninga- og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi (samsett)

Reglugerð um ökuskírteini nr. 830/2011 (samsett)

Reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit (samsett)


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum