Fréttir og tilkynningar


Skatturinn hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2020

13.11.2020

Skatturinn er meðal þeirra fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana sem hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2020, sem Félag kvenna í atvinnulífinu veitir.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og var veitt viðurkenning til 30 fyrirtækja, 5 sveitarfélaga og 9 opinberra aðila úr hópi þeirra sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. 

Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2019 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum um rúmlega helming á milli ára.

Hjá Skattinum er unnið eftir jafnréttisstefnu sem sett hefur verið og hefur embættið nýlega hlotið jafnlaunavottun. Konur eru um 53% starfsmanna Skattsins og í framkvæmdastjórn sitja 11 manns, þar af fimm konur.

Lesa umfjöllun FKA

Jafnréttisstefna Skattsins


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum