Fréttir og tilkynningar


Til endurskoðenda, bókhaldsstofa og viðurkenndra bókara.

14.9.2015

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að framlengja síðasta skilafrest á lögaðilaframtölum framtalsársins 2015, vegna rekstrar á árinu 2014 til og með föstudagsins 18. september 2015.

Frestur þessi er einvörðungu fyrir þá sem atvinnu hafa af framtalsgerð.

Þótt formlegum fresti ljúki 18. september 2015 verður leitast við að taka við innsendum framtölum eftir þann tíma, eftir því sem tök verða á, enda standist þau framtöl skoðun.

Ríkisskattstjóri mælist eindregið til þess að skattframtölum lögaðila sé skilað jafnóðum og lokið sé við gerð þeirra.

Í viku 39 (20. - 26. sept.) mun ríkisskattstjóra birta auglýsingu í dagblöðum um að allir frestir til að skila framtölum séu liðnir. Sömuleiðis verða tölvupóstar sama efnis sendir til forráðamanna lögaðila.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum