Fréttir og tilkynningar


Endurskoðun fyrirkomulags við framlagningu álagningarskrár

24.5.2019

Í framhaldi af áliti Persónuverndar í máli 2018/1507, dags. 29.11.2018, um gagnagrunn með persónuupplýsingum, hefur ríkisskattstjóri tekið til skoðunar alla framkvæmd við framlagningu og birtingu upplýsinga úr álagningarskrá.

Könnun þessi stendur yfir og er enn ekki lokið. Ljóst er þó að ríkisskattstjóri mun ekki senda fjölmiðlum upplýsingar um hæstu greiðendur, þar sem slík birting er ekki talin samræmast þeim ákvæðum sem gilda um persónuvernd og friðhelgi einkalífs.

Auglýsing um að álagningu sé lokið á einstaklinga verður birt þann 31. maí n.k. og álagningar- og innheimtuseðlar einstaklinga gerðir aðgengilegir á vef ríkisskattstjóra þann dag. Aftur á móti mun álagningarskrá ekki verða lögð fram fyrr en dagana 19. ágúst til 2. september n.k. eða 15 dögum fyrir lok kærufrests sem er 2. september 2019, sbr. 1. mgr. 98. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

24. maí 2019
Ríkisskattstjóri


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum