Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 4/2022 um sátt

20.4.2022

Samkomulag um sátt vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Þann 20. apríl 2022 gerðu ríkisskattstjóri og málsaðili með sér samkomulag um að ljúka máli með sátt máli vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir pþl.)

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

Málsaðili viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018:

  • Hafa ekki framkvæmt athugun á stjórnmálalegum tengslum í þremur tilvikum í samræmi við 1. mgr. 17. gr pþl. og teljast þau brot varða við 7. og 11. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki framkvæmt athugun á uppruna auðs viðskiptamanns sem sannanlega er með stjórnmálaleg tengsl í einu tilviki í samræmi við b. lið 2. mgr. 17. gr. pþl. og telst það brot varða við 7. og 11. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Með samkomulagi þessu fellst málsaðili á að greiða sekt að fjárhæð 1.000.000 krónur.

Þá fellst málsaðili á að framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra.

Málavextir og málsástæður og lagarök

Í nóvember 2019 óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl.

Málsaðili varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn. Í kjölfarið boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar sem fór fram þann 3. nóvember 2021 á starfsstöð félagsins.

Ríkisskattstjóri gerði athugasemdir við að í engu tilviki hafi félagið framkvæmt athugun á stjórnmálalegum tengslum viðskiptamanna og að félagið hafi ekki framkvæmt aukna áreiðanleikakönnun á viðskiptamanni sem sannanlega var með stjórnmálaleg tengsl. Þá gerði ríkisskattstjóri einnig athugasemd við að félagið starfaði ekki samkvæmt eigin verkferli um athugun á alþjóðlegum þvingunarlistum. Ríkisskattstjóri setti fram úrbótakröfu þann 24. nóvember 2022 með fresti til 3. febrúar 2022 þar sem félaginu gafst kostur á að bæta úr framangreindu.

Ríkisskattstjóri tók út úrbótakröfu félagsins á starfsstöð þess þann 15. mars 2022. Niðurstaða þess eftirlits leiddi í ljós að félagið hafði ekki að fullu lokið þeim úrbótum sem ríkisskattstjóri setti fram í úrbótakröfu dagsettri 24. nóvember 2021. Að teknu tilliti til andmæla félagsins er það niðurstaða ríkisskattstjóra að félagið telst ekki hafa framkvæmt athugun á stjórnmálalegum tengslum í þremur tilvikum í samræmi við 1. mgr. 17. gr pþl. og teljast þau brot varða við 7. og 11. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl. Þá er það einnig niðurstaða ríkisskattstjóra að félagið hafi ekki framkvæmt athugun á uppruna auðs viðskiptamanns sem sannanlega var með stjórnmálaleg tengsl í einu tilviki í samræmi við b. lið 2. mgr. 17. gr. pþl. og telst það brot varða við 7. og 11. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. pþl. við ákvörðun stjórnvaldssekta, tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.

Við mat á sektarfjárhæð hefur ríkisskattstjóri litið til þeirra gagna sem félagið sendi inn með fyrri andmælum sínum og tekið tillit til þeirra að hluta. Fellur ríkisskattstjóri frá því að stjórnmálaleg tengsl hafi ekki verið könnuð í fimm tilvikum og fellst á með félaginu að athugun á stjórnmálalegum tengslum hafi ekki farið fram í þremur tilvikum. Ríkisskattstjóri fellst einnig að hluta til á innsend gögn félagsins er varða könnun á uppruna auðs og fjármagns aðila með stjórnmálaleg tengsl. Verður þó ekki fram hjá því litið að þær upplýsingar sem félagið sendir er almennur liður í upplýsingaöflun við sölu fasteigna og eru ekki gögn sem félagið aflaði í þeim tilgangi að framkvæma aukna áreiðanleikakönnun hjá aðila með stjórnmálaleg tengsl í samræmi við 2. mgr. 17. pþl. Ekki verður fallist á síðari andmæli félagsins er lúta að skýringum um framkvæmd aukinnar áreiðanleikakönnunar. Við úttekt á úrbótakröfu á starfsstöð félagsins var ljóst að félagið var ekki upplýst um skyldu sína um að afla aukinna upplýsinga í samræmi við 17. gr. pþl. Þá lítur ríkisskattstjóri einnig til þess svigrúms sem félaginu hefur þegar verið veitt varðandi aðra vankanta sem ekki var tekið inn í fyrirhugaða boðun sektar. Einnig er litið til þess að um ítrekun á broti sé að ræða og hefur það áhrif til þyngingar. Ríkisskattstjóri tekur tillit til samstarfsvilja félagsins og telst það félaginu til bóta. Þá er einnig litið til fjárhagsstöðu félagsins m.v. ársreikninga fyrir árin 2020 og 2019. Telst sektarfjárhæð, að öllu framangreindu virtu, hæfilega ákveðin 2.000.000 krónur. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af boðaðri sektarfjárhæð, eða 1.000.000 krónur.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkomulagið er bindandi fyrir málsaðila og ríkisskattstjóra þegar báðir aðilar hafa samþykkt og staðfest efni þess með undirskrift sinni. Málsaðili telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið, sbr. nánar viðauka I við samkomulag þetta.

Málsaðili brýtur gegn samkomulaginu ef hann greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka I við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að málsaðili teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði málsaðili uppvís að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 64/2019, um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög. Þrátt fyrir framangreint hefur ríkisskattstjóri, á grundvelli b. liðar 2. mgr. 53. gr. laga nr. 140/2018 og 2. mgr. 5. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020 um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 64/2019 um frystingu fjármuna og skráningu aðila á lista yfir þvingunaraðgerðir í tengslum við fjármögnun hryðjuverka og útbreiðslu gereyðingarvopna, tekið tillit til andmæla félagsins og fellt auðkenni málsaðila út úr sáttargerð.

Ríkisskattstjóri sendir málsaðila rafrænt eintak af sáttargerð. Málsaðili skal undir­rita og senda eintakið til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá móttöku. Ríkis­skatt­stjóri undirritar því næst sáttargerðina og sendir málsaðila rafrænt. Krafa verður í kjölfarið birt í netbanka félagsins þar sem veittur er 30 daga greiðslufrestur, sbr. 5. mgr. 4. gr. reglna nr. 1132/2020 um sáttargerðir samkvæmt peningaþvættislögum.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum