Fréttir og tilkynningar


Birting álagningar einstaklinga 2022

23.5.2022

Niðurstöður álagningar einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 27. maí nk. en álagning fer fram 31. maí.

Við álagningu eru gerðir upp ofgreiddir og vangreiddir skattar vegna fyrra árs auk þess sem lögð eru á gjöld s.s. útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra.

Opna þjónustuvef

Leiðbeiningar

Útbúnar hafa verið stutta leiðbeiningar um hvernig lesa megi úr álagningunni og er þær að finna hér að neðan, á vefnum íslensku, ensku og pólsku, og sem bæklingar á íslensku og ensku.

Inneignir verða greiddar út 1. júní

Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem skráður er hjá innheimtumönnum. Ef skráðum bankareikningi hefur verið lokað er hægt að skrá nýjan eða breyta fyrri skráningu á þjónustuvef Skattsins.

Innheimta og greiðsluerfiðleikar

Þau sem ekki eru í vinnu eða starfa sjálfstætt fá sendan greiðsluseðil vegna vangoldinna skatta. Eigi þau í erfiðleikum með að greiða er hægt að gera greiðsluáætlun. Þá er greiðslum dreift yfir lengra tímabil sem hefur í för með sér léttari mánaðarlega greiðslubyrði en aukinn vaxtakostnað.

Greiðsluáætlanir má gera á island.is með rafrænum skilríkjum. 

Nánari upplýsingar innheimtu

Þjónusta

Nánari upplýsingar um niðurstöðu álagningar má fá með því að senda fyrirspurn eða hringja.

Sími 442 1414 vegna upplýsinga um álagningu.
Sími 442 1000 vegna almennra fyrirspurna og innheimtu.

Spurt og svarað

Rafræn skilríki og veflyklar

Niðurstöður álagningar eru aðgengilegar á þjónustuvef og þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil til innskráningar. Unnt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningu. 

Upplýsingar um rafræn skilríki

Niðurstaða álagningar er ekki rétt, hvernig kæri ég?

Niðurstöðu álagningar má kæra með því að skrá sig inn á þjónustuvef skattsins, velja "Framtal" og "Beiðni um leiðréttingu". Þar er hægt að gera grein fyrir þeim efnisatriðum sem þarf að breyta og senda viðbótargögn máli þínu til stuðnings.

Ég á eftir að skila framtali - hvað geri ég?

Framtal þeirra sem eiga eftir að skila er enn aðgengilegt á þjónustuvef. Þau sem eiga eftir að skila þurfa því að skrá sig inn á þjónustuvef með rafrænum skilríkjum eða veflykli og skila framtalinu. Framtalið verður þá tekið fyrir sem kæra og fær framteljandi sent bréf þegar niðurstaða liggur fyrir.

Opna þjónustuvef

Ég skulda, er hægt að semja um greiðsluna?

Já, hægt er að gera greiðsluáætlun og lækka mánaðarlega greiðslubyrði.

Hægt er að ganga frá greiðsluáætlunum í sjálfsafgreiðslu á island.is að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. 

Falli aðstæður utan þeirra má senda þjónustufulltrúum tölvupóst á netfangið vanskil@skatturinn.is.

Umsókn um greiðsluáætlun

Nánari upplýsingar

Hvers vegna skulda ég?

Því er ekki auðvelt að svara, en algengt er að skuldir umfram útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra hafi með ofnýtingu persónuafsláttar á árinu 2021 að gera eða að greitt hafi verið í röngu skattþrepi, t.d. vegna greiðslna frá fleiri en einum launagreiðanda.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt

Nánari upplýsingar um skattþrep 2021

Inn á hvaða bankareikning fer inneignin?

Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem er skráður. Hafi upplýsingar um bankareikning ekki verið veittar er einfalt að setja þær inn á þjónustuvef Skattsins www.skattur.is.

Kærufrestur er til 31. ágúst 2022

Vanti upplýsingar á skattframtal þitt sem þú telur að hafi áhrif á niðurstöður álagningar getur þú kært álagninguna. Mögulegt er að kæra í gegnum þjónustuvef, gera þar grein fyrir því sem þarf að skoða og hlaða inn viðbótargögnum málinu til stuðnings. 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum