Fyrsta greiðsla barnabóta ársins 2022
Fyrsta greiðsla barnabóta á árinu 2022 verður þriðjudaginn 1. febrúar n.k., forsendur fyrir útreikningi barnabóta hvers og eins er að finna á þjónustusíðu Skattsins.
Barnabætur eru greiddar inn á reikning sem skráður er á þjónustusíðu Skattsins eða hjá Innheimtumanni. Ef engar upplýsingar um bankareikning eru skráðar, eða breyta þarf fyrirliggjandi reikningsupplýsingum, má skrá nýjan reikning á þjónustusíðu Skattsins.
Forsendur útreiknings barnabóta
Fyrirframgreiðsla barnabóta nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Miðað er við fjölskyldustöðu samkvæmt Þjóðskrá eins og hún er 31. desember árið á undan.
Við útreikning á skerðingu er miðað við upplýsingar um tekjur í staðgreiðslu að viðbættum upplýsingum um tekjur utan staðgreiðslu af framtali. Viðmiðunartímabil tekna í staðgreiðslu er frá nóvember til nóvember og tekjur utan staðgreiðslu eru teknar af síðasta skattframtali.
Óska eftir leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum
Séu aðstæður einstaklings aðrar en forsendur útreiknings gera ráð fyrir má óska eftir leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum. Algengar breytingar á högum sem geta gefið tilefni til leiðréttingar á fjárhæð barnabóta í fyrirframgreiðslu eru m.a.:
- Tekjur
- Skilnaður/samvistarslit
- Óskráð sambúð
- Ný sambúð
- Maki búsettur og/eða starfar erlendis
Þá er einnig hópur fólks sem ekki fær sjálfkrafa útreikning á fyrirframgreiðslu barnabóta en getur sótt um leiðréttingu með eyðublaði RSK 3.18. Ástæður þess geta verið m.a.:
- Námsmenn erlendis
- Framtali fyrra árs ekki skilað inn
- Flutningur milli landa
- Aðsetur skráð erlendis
- Hjón ekki samvistum
- Hjúskaparstaða óþekkt m.v. skráningu í Þjóðskrá
Sé óskað eftir leiðréttingu verður leiðrétt fjárhæð barnabóta greidd út þegar beiðni hefur verið tekin til afgreiðslu. Beiðnir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er eftir að þær berast.