Gjalddagi virðisaukaskatts er 7. febrúar nk. – flýting álagningar
Vakin er athygli á að gjalddagi vegna uppgjörstímabilsins nóvember-desember 2021 sem og janúar-desember 2021 (ársskila) er 7. febrúar næstkomandi.
Hafi
skýrsla ekki borist degi síðar, þ.e. þann 8. febrúar, verður virðisaukaskattur
áætlaður.
Rekstraraðilar eru hvattir til þess að skila skýrslu á réttum tíma til að komast hjá því að sæta áætlun og sérstaks gjalds sem lagt er á skýrslu sem skilað er í stað áætlunar.