Fréttir og tilkynningar


Kerfiskennitölur

3.2.2020

Með lögum nr. 140/2019, um skráningu einstaklinga, var m.a. gerð sú breyting að launagreiðendur geta ekki lengur sótt um kennitölur beint til Þjóðskrár Íslands fyrir þá erlendu ríkisborgara sem hjá þeim starfa.

Samhliða skráningu í utangarðsskrá eru nú gefnar út kerfiskennitölur sem gefnar eru út fyrir milligöngu opinberra aðila vegna einstaklinga sem ekki þurfa að uppfylla, eða uppfylla ekki, skilyrði til skráningar í þjóðskrá.

Til þess að geta tekið á móti afdreginni staðgreiðslu mun Skatturinn eingöngu sækja um kerfiskennitölur fyrir þá EES/EFTA ríkisborgara sem eru í launuðu starfi hér á landi í allt að sex mánuði. Þeir EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að dvelja hér á landi lengur en sex mánuði eiga að snúa sér beint til Þjóðskrár Íslands en aðrir snúa sér til Útlendingastofnunar.

Einstaklingur af EES/EFTA svæðinu sem óskar eftir kerfiskennitölu vegna launaðs starfs hér á landi í styttri tíma en þrjá mánuði þarf að koma með útfyllta umsókn þar um (RSK 3.30) í einhverja afgreiðslu Skattsins og hafa vegabréf eða ferðaskilríki meðferðis. Umsóknin þarf að vera undirrituð af bæði umsækjanda og launagreiðanda. 

Umsókn erlends ríkisborgara um kennitölu RSK 3.30

Orðsending til launagreiðenda


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum