Fréttir og tilkynningar


Álagning opinberra gjalda á lögaðila 2013

30.10.2013

Upplýsingar um álagningu opinberra gjalda á lögaðila álagningarárið 2013.

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2013 á lögaðila og liggja nú fyrir niðurstöður álagningarinnar.  Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu í árslok 2012 var 37.842.  Alls sættu 11.299 lögaðilar áætlun eða 29,86% af skattgrunnskrá.  Til samanburðar sættu 11.800 lögaðilar áætlun á síðasta ári eða 31,82% af skattgrunnskrá.  Heildarálagning á lögaðila nemur 121.322.881.575 kr. en á árinu 2012 nam hún 118.481.650.793 kr.  Hækkun heildarálagningar er því 2,4%.  Þá má geta þess að endurgreiðslur vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar nýsköpunarfyrirtækja nema samtals 898.293.942 kr. en námu 763.549.430 kr. árið 2012.  Skipting álagningar lögaðila 2013 er eftirfarandi:

Gjald og skattur Kr. Fjárhæð  Hækkun / (- lækkun)
fjárhæðar frá fyrra ári
Tryggingagjald kr.  67.015.305.710 -3,28%
Tekjuskattur kr.  44.780.047.357 6,24%
Fjársýsluskattur kr.  2.604.950.152 -
Viðb. á sérst. sk. á fjármálafyrirt. kr.  2.203.814.843 -1,29%
Sérstakur fjársýsluskattur kr.  1.696.757.437 -
Fjármagnstekjuskattur kr.  1.100.354.675 -20,86%
Sérst. sk. á fjármálafyrirtæki kr.  1.032.644.664 -1,29%
Útvarpsgjald kr.  628.371.200 4,44%
Búnaðargjald kr.  216.207.687 13,94%
Jöfnunargjald alþjónustu kr.  44.427.850 5,64%

Reykjavík 30. október 2013

Ríkisskattstjóri


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum