Umsókn um leiðréttingu á fyrirframgreiðslu barnabóta
Fyrirframgreiðsla barnabóta nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Miðað er við fjölskyldustöðu samkvæmt Þjóðskrá eins og hún er 31. desember árið á undan.
Við útreikning á skerðingu er miðað við upplýsingar um tekjur í staðgreiðslu að viðbættum upplýsingum um tekjur utan staðgreiðslu af framtali. Viðmiðunartímabil tekna í staðgreiðslu er frá nóvember til nóvember og tekjur utan staðgreiðslu eru teknar af síðasta skattframtali.
Forsendur fyrir útreikningi barnabóta hvers og eins er að finna á þjónustusíðu RSK.
Séu aðstæður einstaklings aðrar en forsendur útreiknings gera ráð fyrir má óska eftir leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum. Algengar breytingar á högum sem geta gefið tilefni til leiðréttingar á fjárhæð barnabóta í fyrirframgreiðslu eru m.a.:
- Tekjur
- Skilnaður/samvistarslit
- Óskráð sambúð
- Ný sambúð
- Maki búsettur og/eða starfar erlendis
Sótt er um leiðréttingu með því að fylla út og skila til RSK eyðublaði RSK 3.18 í síðasta lagi 28. febrúar n.k.
Þá er einnig hópur fólks sem ekki fær sjálfkrafa útreikning á fyrirframgreiðslu barnabóta en getur sótt um leiðréttingu með eyðublaði RSK 3.18. Ástæður þess geta verið m.a.:
- Námsmenn erlendis
- Framtali fyrra árs ekki skilað inn
- Flutningur milli landa
- Aðsetur skráð erlendis
- Hjón ekki samvistum
- Hjúskaparstaða óþekkt m.v. skráningu í Þjóðskrá