Viðurkenndir útflytjendur – gildistími heimildar
Fjöldi innlendra fyrirtækja hefur fengið samþykki Tollgæslustjóra sem viðurkenndur útflytjandi á grundvelli fríverslunarsamninga Íslands við EES og Kína.
Gildistími þessara heimilda er í flestum tilfellum fimm ár, en getur einnig verið til styttri tíma.
Nokkuð hefur borið á því að fyrirtækjum hafi láðst að endurnýja heimilir sem þau hafa fengið úthlutað.
Í heimildarbréfi sem hverju fyrirtæki er afhent, er gildistími sérstaklega tilgreindur. Embættið birtir á heimasíðu sinni lista yfir gild heimildarnúmer. Þar eru einnig auðkennd þau fyrirtæki sem verða tekin út af listanum við næstu uppfærslu hans, þar sem gildistími heimildar hefur fallið úr gildi.