Tryggingagjald

Tryggingagjald er sérstakt gjald sem launagreiðendum ber að greiða af heildarlaunum launamanna sinna á tekjuári og eftir atvikum af eigin reiknuðu endurgjaldi. Tryggingagjald er almennt innheimt í staðgreiðslu og skiptist í almennt tryggingagjald og atvinnutryggingagjald.

Tryggingagjald telst til launatengdra gjalda, en það eru þau gjöld sem launagreiðendur og sjálfstætt starfandi einstaklingar greiða vegna launakostnaðar við atvinnurekstur. Önnur launatengd gjöld í staðgreiðslu eru markaðsgjald og gjald í Ábyrgðasjóð launa, en þau eru innheimt í staðgreiðslu samhliða innheimtu tryggingagjalds. Í framkvæmd er markaðsgjald og gjald í Ábyrgðasjóð launa gefið upp sem hluti af tryggingagjaldi. 

Á staðgreiðsluárinu 2025 er tryggingagjaldshlutfallið samtals 6,35%Þar af er tryggingagjaldið sjálft 4,90%, atvinnutryggingagjald 1,35%, og síðan bætast við gjald í ábyrgðasjóð launa (0,05%) og markaðsgjald (0,05%).

Tryggingagjaldi skal skila mánaðarlega til innheimtumanna ríkissjóðs.

Álagningarhlutfall tryggingagjalds

Rekstrarár  Hlutfall   
2025  6,35%   
2024  6,35%   
2023  6,35%   
2022 6,35%  
2021 6,10%  
2020 6,35%   
2019 6,60%  
2018  6,85%   
2017 6,85%   

Sérstök trygging vegna sjómanna á fiskiskipum er 0,65% og bætist við almennt álagningarhlutfall.

Dæmi um útreikning tryggingagjalds í staðgreiðslu er að finna í fyrstu orðsendingu til launagreiðenda árlega.

 

Gjaldstofn

Tryggingagjald vegna starfsmanna með A1 (áður E-101) vottorð:

Gjaldskyldir aðilar

Greiðslutímabil

Tryggingagjald í álagningu

Rekstrarkostnaður

Tryggingagjald hjá félögum með annað reikningsár en almanaksárið

 Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

 Annað


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum