Saga Skattstofu Norðurlandsumdæmis eystra

Árið 1962 tók gildi ný skipan á framkvæmd skattamála þegar embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra voru sett á fót. Skattstjórarnir níu fóru með skattamál í skattumdæmunum.

Skattstofa Norðurlandsumdæmis eystra var staðsett á Akureyri og tók þegar til starfa. 

Um Gunnar Karlsson

Gunnar Karlsson lauk kandídatsprófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands í maí 1981. Hann var skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra frá 1. febrúar 1996 til 1. janúar 2010, þegar skattstofur landsins sameinuðust embætti ríkisskattstjóra, RSK. Hann tók þá við starfi sviðsstjóra einstaklingssviðs, síðar samskiptasviðs hjá RSK, með aðsetur á Akureyri og gegndi því starfi til starfsloka vegna aldurs frá og með 1. apríl 2022. 

Gunnar lauk námi í hótelstjórn og rekstri árið 1975 frá Norsk Hotelhøgskole í Stavanger, starfaði lengi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, þar af í 14 ár sem hótelstjóri á Hótel KEA. Hann gegndi í 2 ár starfi framkvæmdastjóra hjá Kaffibrennslu Akureyrar hf. Gunnar starfaði sem lektor í hlutastarfi við Háskólann á Akureyri frá haustinu 1987, þegar háskólinn tók til starfa og gegndi því starfi, meðfram aðalstarfi sínu, til ársins 2007. Einnig starfaði hann sem stundakennari við Verkmenntaskólann á Akureyri í viðskipta- og hagfræðigreinum á árunum 1981 til 1987.

Lesa greinina

Sækja sem pdf-skjal

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum