Staðgreiðsla 2021

.

Reiknivél staðgreiðsluAlmennt

Öllum þeim sem teljast launagreiðendur samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, þ.e. þeir sem inna af hendi eða reikna greiðslur sem teljast vera laun, er skylt að halda eftir staðgreiðslu opinberra gjalda af launum starfsmanna og öðrum staðgreiðsluskyldum greiðslum og af reiknuðu endurgjaldi vegna eigin vinnu við reksturinn. Staðgreiðslan samanstendur af tekjuskatti og útsvari og er fyrirframgreiðsla uppí álagningu opinberra gjalda samkvæmt skattframtölum einstaklinga. Tekjuskattur rennur í ríkissjóð og útsvarið til viðeigandi sveitarfélags.

Skil á staðgreiðslu eru 15. hvers mánaðar

Launagreiðendur og einstaklingar með reiknað endurgjald gera staðgreiðslu í hverjum mánuði og skila skilagrein og greiða kröfu fyrir lok dags 15. hvers mánaðar. Þannig eru skil vegna janúarlauna þann 15. febrúar, skil á launum vegna febrúar 15. mars o.s.frv. Beri skiladag upp á helgi eða helgidag færast skil aftur til næsta virka dags á eftir.

Upplýsingar um frestun gjalddaga staðgreiðslu launa og tryggingagjalds vegna Covid-19

Hlutföll og fjárhæðir

 

Launagreiðandi

Útsvar

Staðgreiðslustofn

Til staðgreiðsluskyldra launa sem draga á staðgreiðslu opinberra gjalda frá teljast, auk hvers konar endurgjalds fyrir vinnu, ökutækjastyrkir, hlunnindi, flutningspeningar, ferðapeningar, dagpeningar og aðrar starfstengdar greiðslur, aðrar en þær sem heimilt er að halda utan staðgreiðslu samkvæmt reglugerð þar um, sbr. ítarefni neðst á síðunni.

Sem dæmi um endurgjald fyrir vinnu eru laun, hlunnindi, styrkir og reiknað endurgjald sem og lífeyrisgreiðslur, bætur og styrkir sem ekki eru sérstaklega undanþegnir samkvæmt lögum. Heimilaður frádráttur frá tekjum er m.a. lífeyrissjóðsiðgjald og frádráttur á móti ökutækjastyrk og dagpeningum eða hliðstæðum endurgreiðslum á kostnaði sem sannað er að séu ferða- og dvalarkostnaður vegna atvinnurekanda og eru í samræmi við matsreglur ríkisskattstjóra (skattmat).

Undanþága frá staðgreiðslu

Þær greiðslur sem ekki falla undir staðgreiðslu opinberra gjalda eru tæmandi taldar upp í reglugerð.

Ökutækjastyrkir

Dagpeningar og ferðapeningar

Útfararstyrkir frá stéttarfélögum

Einkennisfatnaður sem launagreiðandi lætur launamanni í té

Vinningar í happdrætti, veðmáli og keppni

Risnukostnaður

Ýmsar launagreiðslur utan atvinnurekstrar

Óverulegt reiknað endurgjald (laun)

Reiknað endurgjald (laun) barna

Höfundarlaun

Greiðslur vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar

Opinberir styrkir

Verðlaun

Starfsmenntunar- og vísindasjóðsstyrkir

Launatekjur barna

Styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga

Styrkir úr minningarsjóðum

Ættleiðingarstyrkir

Frádráttur frá staðgreiðsluskyldum greiðslum

Draga má frá staðgreiðsluskyldum launagreiðslum iðgjald í lífeyrissjóð að hámarki 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd (séreignarsjóður), enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Afdráttur staðgreiðslu

Afdráttur staðgreiðslu opinberra gjalda skal miðast við laun hvers mánaðar fyrir sig og vera í samræmi við ákvæði laga um staðgreiðslu opinberra gjalda. Staðgreiðslan er reiknuð miðað við staðgreiðsluhlutfall hverju sinni. Staðgreiðsluhlutfallið er ákvarðað miðað við gildandi tekjuskattshlutfall fyrir viðeigandi skattþrep og að viðbættu meðaltalsútsvari miðað við öll sveitarfélög í landinu samkvæmt auglýsingu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Frá reiknaðri staðgreiðslu er dreginn persónuafsláttur.

Laun frá fleirum en einum launagreiðanda

Greiðslur frá Ábyrgðasjóði launa

Atvinnuleysisbætur

Breytileg laun

Greiðslur frá öðrum en aðallaunagreiðanda

Greiðslur frá tryggingafélögum

Menn með takmarkaða skattskyldu

Menn sem koma til Íslands til tímabundinna starfa, þ.e. skemur en 6 mánuði á 12 mánaða tímabili, bera takmarkaða skattskyldu vegna tekna sem þeir afla hér á landi og greiða tekjuskatt og útsvar eftir almennum reglum og í almennu skattþrepi. Með tekjum er átt við laun, starfstengdar greiðslur, hlunnindi o.s.frv.

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Að öðru leyti gilda ákvæði tvísköttunarsamninga ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland.

Útsvar manna sem bera takmarkaða skattskyldu er greitt til þess sveitarfélags þar sem meirihluti tekna var aflað.

.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Annað


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum