Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2016

31.10.2016

Álagningu tekjuskatts 2016 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2015 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á rsk.is og skattur.is.

Álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag liggja frammi á viðkomandi starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2016 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. desember 2016.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

Reykjavík, 31. október 2016

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum