Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 2/2014

25.7.2014

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2014, sem og ákvörðun vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 25. júlí til 8. ágúst 2014 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 25. ágúst 2014.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. ofangreindra laga.

Sérstök athygli er vakin á því að sá hluti barna– og vaxtabóta ásamt öðrum inneignum samkvæmt álagningar- og innheimtuseðli 2014, sem greiða skal út að lokinni álagningu, verður greiddur á gjalddaga, sem er 1. ágúst n.k. Innheimta eftirstöðva opinberra gjalda hefst á sama gjalddaga.

Reykjavík 25. júlí 2014

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum