Ákvarðanir ríkisskattstjóra

Ákvörðun 1/2023 um sátt

24.1.2023

Þann 23. janúar 2023 gerðu ríkisskattstjóri og Kasa fasteignir ehf. (hér eftir málsaðili) með sér samkomulag um að ljúka máli með sátt í máli félagsins vegna brota á ákvæðum laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (hér eftir pþl.).

Meginatriði samkomulagsins eru sem hér segir:

Málsaðili viðurkennir að hafa brotið gegn eftirfarandi ákvæðum laga nr. 140/2018:

  • Hafa ekki framkvæmt áreiðanleikakönnun í öllum tilvikum í samræmi við 8. og 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 3. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki aflað upplýsinga um raunverulegan eiganda í öllum tilvikum í samræmi við e-lið 1. mgr. 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 4. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.
  • Hafa ekki sannað deili á viðskiptamönnum í samræmi við a-lið 1. mgr. 10. gr. pþl. og teljast þau brot varða við 4. tl. 1. mgr. 46. gr. pþl.

Með samkomulagi þessu fellst málsaðili á að greiða sekt að fjárhæð 250.000 krónur.

Þá fellst málsaðili á að framkvæma fullnægjandi úrbætur innan tilgreindra tímamarka í samræmi við úrbótakröfu ríkisskattstjóra.

Málavextir, málsástæður og lagarök

Með bréfi, dags. 21. október 2022, óskaði ríkisskattstjóri eftir upplýsingum og gögnum frá félaginu á grundvelli 2. mgr. 38. gr. pþl. og 2. mgr. 16. gr. frystingarlaga.

Málsaðili varð við beiðni ríkisskattstjóra og afhenti umbeðin gögn.

Með tölvupósti þann 7. nóvember 2022 boðaði ríkisskattstjóri til vettvangsathugunar sem fór fram þann 22. nóvember 2022 á starfsstöð málsaðila.

Við framkvæmd vettvangsathugunar varð meðal annars ljóst að málsaðili hafði framkvæmt áhættumat og peningaþvættisstefna var til staðar. Hins vegar kom í ljós við vettvangsathugun að þær áreiðanleikakannanir sem voru skoðaðar voru hafi ekki allar verið framkvæmdar með fullnægjandi hætti. Telst framangreint brot varða stjórnvaldssekt í samræmi við 46. gr. pþl.

Sektarfjárhæð

Sektarfjárhæð er ákvörðuð í samræmi við reglur ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018. Samkvæmt reglunum er miðað við að sektarfjárhæð sé hlutfallslega lægri en sem ætla má að fjárhæð stjórnvaldssektar gæti numið að teknu tilliti til mögulegra þyngingar- og mildunarsjónarmiða auk þess sem litið er til þess á hvaða stigi meðferð máls er þegar því er lokið með sátt.

Samkvæmt 2. mgr. 46. gr. pþl. og 1. mgr. 20. gr. frystingarlaga skal, við ákvörðun stjórnvaldssekta tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. alvarleika brots, hvað brotið hefur staðið yfir lengi, ábyrgðar hins brotlega hjá lögaðilanum, fjárhagsstöðu hins brotlega, ávinnings af broti eða taps sem forðað er með broti, hvort brot hafi leitt til taps þriðja aðila, hvers konar mögulegra kerfislegra áhrifa brotsins, samstarfsvilja hins brotlega, fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.

Við mat á fjárhæð sektar lítur ríkisskattstjóri til þess að félagið hafi ýmist ekki framkvæmt áreiðanleikakönnun á viðskiptamönnum, þ.e. fyrirsvarsmönnum lögaðila, eða ekki framkvæmt áreiðanleikakönnun á viðskiptamönnum með fullnægjandi hætti. Þá hefur ríkisskattstjóri einnig litið til fjárhagsstöðu félagsins eins og hún birtist í ársreikningum félagsins. Ríkisskattstjóri tekur tillit til samstarfsvilja félagsins og telst það félaginu til bóta. Einnig er litið til þess að málsaðili er auðkenndur í birtingu ákvörðunar á vef ríkisskattstjóra. Telst sektarfjárhæð, að öllu framangreindu virtu, hæfilega ákveðin 500.000 krónur. Með vísan til 2. mgr. 3. gr. reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020 nemur fjárhæð sáttar 50% af boðaðri sektarfjárhæð, eða 250.000 krónur.

Réttaráhrif

Samkomulag þetta er gert á grundvelli 47. gr. laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og reglna ríkisskattstjóra nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Samkomulagið er bindandi fyrir málsaðila og ríkisskattstjóra þegar báðir aðilar hafa samþykkt og staðfest efni þess með undirskrift sinni. Málsaðili telst uppfylla sáttina við greiðslu sektarfjárhæðar og staðfestingu á að úrbótum sé lokið, sbr. nánar viðauka I við samkomulag þetta.

Málsaðili brýtur gegn samkomulaginu ef hann greiðir ekki umsamda sektarfjárhæð, lýkur ekki úrbótum í samræmi við viðauka I við samkomulagið, gaf rangar upplýsingar um málsatvik eða leyndi upplýsingum sem máli skipta. Einnig geta önnur atvik leitt til þess að málsaðili teljist hafa brotið gegn sátt þessari. Verði málsaðili uppvís að því að brjóta gegn samkomulaginu getur ríkisskattstjóri fellt það úr gildi og tekið málið til meðferðar á ný.

Með vísan til 53. gr. pþl. og reglna ríkisskattstjóra nr. 1131/2020, um opinbera birtingu stjórnsýsluviðurlaga samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, er meginreglan sú að birta skuli opinberlega stjórnsýsluviðurlög.

Ríkisskattstjóri sendir málsaðila tvö eintök af sáttagerð. Málsaðili skal undir­rita og senda bæði til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá móttöku. Ríkis­skatt­stjóri undirritar því næst sáttagerðina og sendir málsaðila rafrænt eintak. Samhliða framangreindu verður krafa birt rafrænt þar sem veittur er 30 daga greiðslufrestur, sbr. 5. mgr. 4. gr. reglna nr. 1132/2020, um sáttagerðir samkvæmt lögum nr. 140/2018.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum