Úrskurðir tollgæslustjóra

Úrskurður nr. 14/2010

Tollflokkun, Kindle Wireless Reading Device

13.8.2010

Í dag var hjá Tollstjóra kveðinn upp svofelldur

Ú R S K U R Ð U R

I. Kæra

Með bréfi, dags. 27.01.2010, hefur S kært ákvörðun Tollstjóra um tollflokkun á vörunni Kindle Wierless Reading Device í vöruflokk 8521.9029, sbr. kæruheimild 117. gr. tollalaga nr. 88/2005. Kærandi krefst þess að varan verði ákvörðuð í tollflokk 8471-3009.

II. Málsmeðferð

Þann 18. janúar 2010 flutti S inn 6″ Kindle Wierless Reading Device frá Bandaríkjunum og kom varan til landsins í sendingu með sendingarnúmer D 810 18 01 0 DE CGN I069. Þann 21. janúar 2010 móttók embætti Tollstjóra aðflutningsskýrslu frá tollmiðlara en þar var varan færð í tollflokk 8521.9029. Skýrslan var send frá tollmiðlara til Tollstjóra með skjalsendingu á milli tölva og hlaut þannig SMT-tollafgreiðslu samdægurs, sbr. 23. gr. tollalaga. nr. 88/2005. Tollstjóri gerði ekki athugasemd við afgreiðsluna. Varan var þannig ákvörðuð í tollflokk 8521.9029 og tilheyrandi gjöld skuldfærð á kæranda. Þann 28. janúar 2010 móttók embætti Tollstjóra kæru S vegna fyrrgreindrar tollflokkunar með bréfi dags. 27. janúar 2010.

III. Meginröksemdir kæranda

Meginröksemdir kæranda eru þess efnis að varan hafi verið rangt færð til tollflokks með tilliti til gerðar hennar og notkunarmöguleika. Um sé að ræða lófatölvu af gerðinni Kindle sem tengist inn á 3G net og sé einungis hægt að nota á vefsíðunni www.amazon.com en þar sé hægt að kaupa rafrænar bækur og lesa í umræddri lófatölvu. Tollflokkur 8521.9029 eigi hins vegar við um myndupptökutæki eða myndflutningstæki (video), einnig með innbyggðum myndmóttakara (video runner). Varan falli þannig með réttu undir vöruflokk 8471 sem taki til sjálfvirkra gagnavinnsluvéla og eininga til þeirra; lesara fyrir segulletur eða ritletur, véla til að umskrá gögn á gagnamiðla á táknmáli og vélar til að vinna úr slíkum göngum, ót.a: Þá flokkist varan í undirflokk 3009, þ.e. aðrar sjálfvirkar gagnavinnsluvélar sem hafa að geyma í sama vélarhúsi a.m.k. miðstöð og inn- eða úttakseiningu, einnig samtengdar. Varan falli því í tollflokk með tnr. 8471.3009. Til frekari rökstuðnings vísar kærandi til vörulýsingar af vefslóðinni www.amazon.com.

IV. Niðurstöður

Ágreiningur í þessu máli snýst um tollflokkun vörunnar „Kindle Wireless Reading Device“. Um er að ræða raftæki en megin notkun þess er lestur bóka á rafrænu formi samkvæmt lýsingu vörunnar á vefslóðinni www.amazon.com. Tækið er um 20,32 sm hátt, 13,46 sm breitt og 0,91 sm þykkt. Texti og kyrrmyndir birtast á sérstökum 16 lita gráskala 6″ lesskjá með 600 x 800 pixla upplausn. Tækið tengist Amazon vefsíðunni í gegnum farsímanet og getur sótt þangað bækur gegn gjaldi. Auk bóka getur tækið sótt PDF skrár, dagblöð og tímarit. Einnig er hægt að hlaða efni frá tölvu inn í tækið í gegnum USB snúru. Innra minni tækisins er 2 GB og ætti því að geta innihaldið um 1500 bækur. Auk þessara framkvæmdaþátta getur tækið lesið texta upphátt og hægt er að hlaða inn á það og spila hjóðbækur. Einnig hægt er að skoða á því vefsíðuna www.wikipedia.org og aðrar einfaldar vefsíður í Bandaríkjunum en ekki er boðið upp á þá þjónustu á Íslandi enn sem komið er. Orðabókin „The New Oxford American Dictionary“ er innbyggð í tækið.

Samkvæmt 20. gr. tollalaga nr. 88/2005 skulu innflytjendur færa vöru til tollflokks í viðeigandi tollskjölum samkvæmt almennum reglum um túlkun tollskrárinnar sem birtar eru í viðauka I við tollalögin. Reglurnar eru birtar fremst í tollskránni en einnig er að finna athugasemdir í byrjun hvers flokks og kafla skrárinnar sem ráða túlkun hverju sinni. Tollflokkun skal byggð á orðalagi vöruliða og athugasemda við viðeigandi flokka og kafla kafla skv. túlkunarreglu 1. Þá segir í 1. málsl. reglunnar að fyrirsagnir á flokkum, köflum og undirköflum séu einungis til leiðbeiningar. Flokkun vara í undirliði einstakra vöruliða skal jafnframt byggð á orðalagi undirliðanna og sérhverri tilheyrandi athugasemd við þá í viðeigandi köflum tollskrárinnar skv. túlkunarreglu 6.

Varan hlaut SMT-tollafgreiðslu gegnum tollmiðlara sem færði vöruna í tollflokk 8521.9029 án athugasemda Tollstjóra. Við vörulið 8521 segir að þar falli undir; „myndupptökutæki eða myndflutningstæki (video)“. Undir þann vörulið falla t.d. „flakkarar“, hvort sem þeir eru með innbyggðum skjá eða ekki. Varan, þ.e. tækið, getur einungis skilað kyrrmyndum en ekki hreyfimyndum og aðaleiginleiki þess er fyrst og fremst aflestur rafrænna bóka. Öfugt við flakkara getur tækið ekki geymt allar tölvuskrár. Í vörulýsingu þess eru taldar upp þau skráarform sem tækið getur geymt. Þau eru eftirfarandi: azw, txt, pdf, aa, aax, mp3, mobi, doc og prc, en þetta eru texta- og hljóðskrár. Einnig getur tækið geymt eftirfarandi skrár ef þeim er umbreytt: html, jpeg, gif, png og bmp, en þetta eru vef- og myndaskrár. Í orðalagi vöruliðarins er lögð áhersla á hreyfimyndir (video). Samkvæmt vörulýsingu getur tækið Kindle ekki geymt slíkar tegundir af skrám. Verður því fallist á það með kæranda að varan geti ekki fallið þar undir.

Kærandi telur að varan eigi undir tnr. 8471.3009 í 84. kafla tollskrárinnar. Við vörulið 8471 segir að þar falli undir: „Sjálfvirkar gagnavinnsluvélar og einingar til þeirra; lesarar fyrir segulletur eða ritletur, vélar til að umskrá gögn á gagnamiðla á táknmáli og vélar til að vinna úr slíkum gögnum, ót.a.“ Í athugasemd 5. A við 84. kafla tollskrárinnar er talið upp hvaða verkþætti vélar þurfa að geta framkvæmt til að teljast sjálfvirkar gagnavinnsluvélar. Samkvæmt 2. tl. athugasemdar 5. A verða vélar að vera auðveldlega forritaðar í samræmi við óskir notandans. Samkvæmt 3. tl. verða vélar einnig að geta framkvæmt talnaútreikning samkvæmt ákvörðun notandans. Af vörulýsingu framleiðanda verður ráðið að varan Kindle uppfyllir ekki þessi skilyrði. Af ofangreindu leiðir að útilokað er að færa umrætt tæki í vöruflokk með tnr. 8471.3009. Er því ekki hægt að fallast á kröfu kæranda hér að lútandi.

Í XVI. flokki tollskrárinnar er að finna athugasemdir sem eiga við 84. og 85. kafla hennar, þ.e. vöruliði 8401-8689. XVI. flokkur tekur til vélbúnaðar og vélrænna tækja; rafbúnaðar; hluta til þessara vara og fl. Í 3. athugasemd XVI. flokks segir að leiði ekki annað af orðalagi skuli flokka vélasamstæður settar saman í eina heild úr tveimur eða fleiri vélum og aðrar vélar hannaðar til að framkvæma tvö eða fleiri verkatriði, saman eða sér, eins og eingöngu væri um að ræða þann vélarhluta eða þá vél sem gegnir höfuðhlutverkinu. Megin notkunarmöguleiki Kindle er lestur rafrænna bóka eins og fram hefur komið og hefur það því úrslitaáhrif við tollflokkun. Í því felst að jafnvel þótt varan búi yfir fleiri framkvæmdaþáttum sem eru að einhverju leyti samsvarandi þeim framkvæmdaþáttum sem vörur í 84. kafla taka til, þá hefur slíkt ekki áhrif á tollflokkun enda grundvallarskilyrðum þar ekki fullnægt.

Vöruliður 8543 er í 85. kafla tollskrárinnar sem tekur til rafbúnaðar og raftækja. Við vörulið 8543 segir að þar eigi undir „rafmagnsvélar og -tækjabúnaður, til sérstakra nota, ótalið annað í þessum kafla.“ Fyrstu sex stafirnir í átta stafa tollskrárnúmerum íslensku tollskrárinnar eru í samræmi við samræmdu vörlýsinga- og vörunúmeraskrá Alþjóðatollastofnunarinnar, Harmonized System, sem Ísland er skuldbundið til að fylgja, sbr. auglýsingu nr. 25/1987. Skýringarritum og álitum Alþjóðatollastofnunarinnar um tollflokkun er jafnframt ætlað að stuðla að samræmdri túlkun á flokkunarkerfi stofnunarinnar og eru til leiðbeiningar um tollflokkun samkvæmt íslensku tollskránni, sbr. 189. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 74. gr. rg. nr. 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru. Í skýringum við vörulið 8543.70 í samræmdu skránni segir að þar falli undir öll raftæki, til sérstakra nota, sem ekki falla undir aðra vöruliði kafla 84. og 85. eða aðra kafla skrárinnar en svo er ástatt hér. Varan verður því færð í vörulið 8543 og undirlið 7001, „Aðrar vélar og tækjabúnaður: heimilistæki“. Sambærilegar skýringar er að finna við sameiginlega tollskrá Evrópusambandsins en þar er tollskrárnúmerið 8543.70(10) t.d. talið taka til rafmagnstækja með þýðingar- eða orðabókareiginleikum. Enn fremur er sambærileg vara flokkuð í vörulið 8543 í bandarísku tollskránni en samkvæmt úrskurði USITC (United States International Trade Commission) nr. HQ 964779 frá 27. febrúar 2002 var sambærilega vara, „RCE ebook“, felld þar undir.

Með vísan til ofangreinds verður fallist á það með kæranda að varan hafi verið færð í rangan tollflokk og ákvörðun Tollstjóra að því leytinu til felld úr gildi. Varan skal færð í vörulið 8543 og undirflokk 7001, þ.e. tollnúmer 8543.7001. Þessi niðurstaða hefur þó ekki áhrif á ákvörðun gjalda þar sem sömu gjaldaliðir fylgja hvorum vörulið um sig. Vísast hér einnig til úrskurðar tollstjóra í máli nr. 11/2010.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Embætti Tollstjóra úrskurðar með vísan til þess sem rakið er hér að framan að varan Kindle, sem flutt var inn með sendingu með sendingarnúmer D 810 18 01 0 DE CGN I069, falli í tollflokk með tollnúmer 8543.7001.

Kæruréttur

Úrskurðinum er heimilt að skjóta til Ríkistollanefndar, Skúlagötu 57, Reykjavík, innan 60 daga frá póstlagningardegi bréfs þessa, sbr. 1. mgr. 118. gr. Tollalaga nr. 88/2005.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum