2008

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 255/2008

22.10.2008

 

Skattaðili: A.

Verknaðarlýsing: A var gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna í sjálfstæðri starfsemi hans, vegna greiðslutímabilanna september til og með desember rekstrarárið 2001 og janúar rekstrarárið 2004. Einnig var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda, á lögmæltum tíma, vegna framangreindra greiðslutímabila. Vangoldin afdregin skilaskyld staðgreiðsla opinberra gjalda launamanna A nam samtals kr. 1.152.304.

 Eins var A gefið að sök að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í sjálfstæðri starfsemi hans, vegna uppgjörstímabilanna júlí-ágúst rekstrarárið 2001, maí-júní og nóvember-desember rekstrarárið 2002 og janúar-febrúar, maí-júní og nóvember-desember rekstrarárið 2003. Þá var A gefið að sök vegna uppgjörstímabilanna janúar-febrúar og nóvember-desember rekstrarárið 2003, að hafa vanrækt að standa innheimtumanni ríkissjóðs skil á virðisaukaskattsskýrslum á lögmæltum tíma. Nam vangoldinn innheimtur virðisaukaskattur vegna framangreindra uppgjörstímabila samtals kr. 1.384.460.

Niðurstaða: Háttsemin þótti sönnuð. Undantekning frá fésektarlágmarki, sem mælt er fyrir um í lögum nr. 134/2005, þótti eiga við að hluta. Greiðslusamkomulag við innheimtumann ríkissjóðs þótti ekki geta breytt nein um refsiábyrgð gjaldanda vegna vanrækslu á skilum staðgreiðslu og virðisaukaskatts.

Brotin varða við: 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með áorðnum breytingum.

Úrskurðuð sekt: A gert að greiða sekt að fjárhæð kr. 2.100.000 til ríkissjóðs.

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum