2011

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 414/2011

28.12.2011

Úrskurður nr. 414/2011                                                                   

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2011, miðvikudaginn 28. desember, er tekið fyrir mál nr. 547/2011; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins um að A verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Sverrir Örn Björnsson og Kristinn Gestsson. Upp er kveðinn svofelldur

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi, dags. 7. nóvember 2011, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, fyrir brot á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, og lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, framin vegna rekstraráranna 2005, 2006 og 2007.

Í bréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir:

„A er gefið að sök eftirfarandi:

Skil á efnislega röngu skattframtali. Vanframtaldar tekjur.

A er gefið að sök að hafa, að því er best verður séð af ásetningi, en í það minnsta af stórkostlegu hirðuleysi, staðið skattstjóranum í Reykjanesumdæmi skil á efnislega röngu skattframtali gjaldárið 2007, vegna tekjuársins 2006, með því að vanrækja að gera grein fyrir tekjum að fjárhæð kr. 7.125.046. Umrædda fjárhæð fékk A greidda inn á bankareikning sinn í tveimur greiðslum frá X ehf., og fyrirsvarsmönnum þess félags. Voru umræddar tekjur skattskyldar skv. 4. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003.

Framangreind háttsemi A leiddi til ákvörðunar lægri tekjuskatts- og útsvarsstofns hans en vera bar gjaldárið 2007, vegna tekjuársins 2006 og þar með til ákvörðunar lægri tekjuskatts og útsvars, svo sem hér segir:

Reiknaður tekjuskattur og útsvar

Tekjuár Tekjur Tekjuskattur Útsvar
2006 7.125.046             Vanframtaldar tekjur kr. 7.125.046 1.343.855                 7.125.046 x 23,75 % = 1.692.198 - ónýttur persónuafsláttur kr. 348.343 = 1.343.855 928.393                 7.125.046 x 13,03 % = 928.393
Samtals kr. 7.125.046 1.343.855 928.393

Sú háttsemi A sem lýst hefur verið hér að framan brýtur í bága við ákvæði 90. gr., sbr. A. lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 22. gr. og 19. gr. og 1. mgr. 21. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, beggja með áorðnum breytingum.

Varðar framanlýst háttsemi A sekt samkvæmt 1. mgr. 109. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. mgr. 22. gr. laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.

Við ákvörðun skattstofns vegna tekjuársins 2006 hefur A verið gert að sæta álagningu skatts á álag á vanframtalinn tekjuskattsstofn, samkvæmt 108. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum, kr. 585.479, er komi til frádráttar við ákvörðun sektarfjárhæðar.

Þess er krafist að A verði með úrskurði yfirskattanefndar gert að sæta sekt í samræmi við framangreint.“

Af hálfu skattrannsóknarstjóra ríkisins er málavöxtum lýst í greinargerð, dags. 7. nóvember 2011, sem fylgdi kröfugerðinni.

II.

Með ábyrgðarbréfi yfirskattanefndar, dags. 9. nóvember 2011, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfu skattrannsóknarstjóra ríkisins. Var bréfið endursent yfirskattanefnd með því að þess hefði ekki verið vitjað. Reynt var að koma fram birtingu fyrir gjaldanda, A, eftir ákvæðum b-liðar 1. mgr. 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, en birting tókst ekki.

III.

Sú regla kemur fram í 4. mgr. 110. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að skattrannsóknarstjóri ríkisins getur vísað máli til opinberrar rannsóknar af sjálfsdáðum, svo og eftir ósk sökunauts ef hann vill eigi hlíta því að mál verði afgreitt af yfirskattanefnd samkvæmt framangreindum ákvæðum. Ákvæði þessi ber að skilja svo að skattrannsóknarstjóri ríkisins geti ekki vísað máli til sektarmeðferðar fyrir yfirskattanefnd nema málið hafi áður verið borið undir gjaldanda og hann hafi gefið skattrannsóknarstjóra til kynna á sannanlegan hátt að hann mæli því ekki í gegn að málið hljóti sektarmeðferð fyrir yfirskattanefnd. Þar sem afstaða gjaldanda, A, til meðferðar málsins fyrir yfirskattanefnd liggur ekki fyrir eru ekki skilyrði til þess að fjalla um málið fyrir yfirskattanefnd og er málinu því vísað frá.

Þessi niðurstaða breytir engu um heimild skattrannsóknarstjóra ríkisins til þess að ákveða af sjálfsdáðum hvort efni séu til að vísa máli til opinberrar rannsóknar og almennrar sakamálameðferðar fyrir dómstólum.

Úrskurðarorð:

Máli þessu er vísað frá yfirskattanefnd.

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum