2015

Úrskurður yfirskattanefndar nr. 152/2015

20.5.2015

Úrskurður nr. 152/2015

ÚRSKURÐUR YFIRSKATTANEFNDAR

Ár 2015, miðvikudaginn 20. maí 2015, er tekið fyrir mál nr. 59/2015; krafa skattrannsóknarstjóra ríkisins, um að A, kt. [...], verði gerð sekt vegna meintra brota á skattalögum. Í málinu úrskurða Ólafur Ólafsson, Þórarinn Egill Þórarinsson og Bjarnveig Eiríksdóttir. Upp er kveðinn svofelldur

úrskurður:

I.

Með bréfi, dags. 19. febrúar 2015, hefur skattrannsóknarstjóri ríkisins krafist þess að yfirskattanefnd taki til sektarmeðferðar mál A, kt. [...], fyrir brot á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, bæði með áorðnum breytingum, framin vegna rekstraráranna 2013 og 2014.

Með bréfi yfirskattanefndar, dags. 25. febrúar 2015, var gjaldanda veitt færi á að skila vörn í tilefni af framangreindri kröfugerð skattrannsóknarstjóra ríkisins eða tilkynna sérstaklega ef hann vildi ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiddi mál hans og yrði málið þá endursent skattrannsóknarstjóra ríkisins sem tæki ákvörðun um hvort því yrði vísað til opinberrar rannsóknar, sbr. 4. mgr. 31. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 4. mgr. 41. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Með tölvupósti, dags. 24. apríl 2015, hefur umboðsmaður gjaldanda lýst því yfir að gjaldandi vilji ekki hlíta því að yfirskattanefnd afgreiði mál hans.

II.

Mál þetta er sent skattrannsóknarstjóra ríkisins í samræmi við það sem kemur fram í yfirlýsingu umboðsmanns gjaldanda í tölvupósti, dags. 24. apríl 2015.

Úrskurðarorð:

Mál A er sent skattrannsóknarstjóra ríkisins.

  

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum